BYR fasteignasala kynnir í einkasölu AUSTURVEGUR 44, 710 Seyðisfjörður.
Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stakstæðum bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu.Íbúðarhús byggt árið 1945, 96.2 m² að stærð og bílskúr byggður árið 1962, 26.0 m² að stærð, samtals 122.2 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar; Neðri hæð: Anddyri, tvö herbergi, hol/gangur geymsla og baðherbergi.
Efri hæð: Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi.
Bílskúr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Nánari lýsing;Neðri hæð: Anddyri, dúkur á gólfi, gangur er innan við forstofu, þaðan liggur timburstigi upp á hæð.
Tvö herbergi, bæði án fataskápa.
Hol/gangur, þaðan liggur timburstigi upp á efri hæð, þvottaaðstaða, hitakútur og inntök.
Baðherbergi, salerni, handlaug og baðkar undir stiga.
Geymsla, er inn af holi/gangi.
Efri hæð: Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, frá stofu er útgengt út á svalir.
Eldhús, upprunaleg innrétting, helluborð (tvær hellur), ofn og vifta, stálvaskur, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Eldavél er óvirk, en ný eldavél fylgir.
Herbergi er inn af alrými.
Austurvegur 44, einbýlishús á tveimur hæðum, jarðhæð er steypt, efri hæð er byggð úr timbri forsköluð. Valmaþak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Þak var endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan að sögn seljanda. Bílskúr er timburskúr með járni á þaki. Hellulögð stétt er framan við húsið, malarplan, lóð er gróin,
afgirt að framanverðu. Lóð er 260.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-8311. Austurvegur 44.Stærð: Íbúð 96.2 m². Bílskúr 26.0 m². Samtals 122.2 m².
Brunabótamat: 46.650.000 kr.
Fasteignamat: 23.950.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 26.800.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1945. Bílskúr 1962.
Byggingarefni: Steypt+timbur.