FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR í EINKASÖLU: Fallega og bjarta 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð og stæði í bílageymslu í nýlegu húsi við Áshamar 24, 221 Hafnarfirði. Eignin er samtals 108,3 fm og er á tveimur pöllum með mikilli lofthæð. Eignin telur þrjú rúmgóð svefnherbergi, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö baðherbergi en annað er með tengi fyrir þvottavél og og þurrkara. Sér geymsla í sameign, stæði í bílageymslu og sameigninleg hjóla- og vagnageymsla.
Hamranesið er nýlegt hverfi í mikilli uppbyggingu. Á Völlunum og Skarðshlíð eru tveir grunnskólar og fjórir leikskólar. Að auki er gert ráð fyrir að það komi grunnskóli og tveir fjögurra deilda leikskólar, hjúkrunar- og heilsugæslustöð í Hamranesið. Sutt er í góðar gönguleiðir og miklar náttúruperlur úr hverfinu. Virkilega falleg eign í nýlegu hverfi í Hafnarfirði. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.
Nánari lýsing eignarinnar:
Neðri pallur:
Forstofa: Sér inngangur, ljós gráar flísar á gólfi og rennihurð sem skilur að önnur rými eignarinnar. Gluggi með opnanlegu fagi.
Herbergi I: Rúmgott herbergi, 8,5 fm. og hátt til lofts. Innangent úr forstofu. Ljóst harðparket á gólfi og góður hvítur fataskápur.
Eldhús/gangur/borðstofa: Opið rými með eldhúseyju, fataskápur sem skilur að eldhhús og gang. Innréttingar í eldhúsi eru frá HTH innréttingum, hvítar og ljós-ask litaðar. Spanhelluborð, gufugleypir, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Ljóst harðparket á gólfi. Mikil lofthæð.
Baðherbergi I: Hvít innrétting, speglaskápur, walk in sturta, upphengt wc. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. Aukin lofthæð. Loftskiptakerfi er í íbúðinni og staðsett inni á baðherbergi.
Svefnherbergi: 12,6 fm hjónasvíta með baðherbergi inn af. Góðir hvítir fataskápar, ljóst harðparket á gólfi og mikil lofthæð.
Baðherbergi II: Hvít innrétting, speglaskápur, walk in sturta, upphengt wc. Flísalagt í hólf og gólf. Aukin lofthæð. Gluggi með opnanlegu fagi.
Efri pallur:
Stofa: Er í opnu alrými með eldhúsi og bortðstofu en á efri palli. Hvítur stálstigi leiðir upp í stofu úr borðstofu og hvítt handrið skilur að stofu og eldhús/borðstofu. Ljóst harðparket á gólfi. Gengið er út á 9,1 fm sérafnotareit frá stofu.
Herbergi III: Rúmgott herbergi, 9,2 fm. Lóst harðparket á gólfi og góður hvítur fataskápur.
Geymsla: Sér 7,2 fm geymsla í sameign. Aukin lofthæð.
Bílastæði: Sér stæði í bílageymslu, merkt B155. Tengi fyrir hleðslustöð.
Sameign: Er öll sú snyrtilegasta en innangengt er niður í sér geymslu, bílakjallara og hjóla-og vagnageymslu úr stigagangi. Það er einnig lyfta í húsinu. Sameiginlegur garður með skemmtilegu leiksvæði.
Öll loftljós og gardínur fylgja með eigninni.
Húsið er byggt árið 2025 en byggingaraðili er EYKT ehf. Húsið hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins, leyfi númer: 1089 0319 samkvæmt viðmiðunarreglum 089 Nýbyggingar.
Burðarkerfi hússins er staðsteypt með hefðbundnum hætti. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan. Klæðningar eru sléttar sementsbundnar plötur ásamt báru-álklæðningu samkvæmt
hönnun arkitekts.
Þak hússins er steinsteypt, klætt með þakpappa og einangrað með XPS einangrun eða svokallað viðsnúið þak. Ofan á einangrun er drendúkur og er efsta lag þaksins lagt hellum og torfi.
Gluggar og svalahurðir eru í timbur/ál útfærslu með opnanlegum gluggafögum. Allt gler er tvöfalt einangrunargler. Útihurðir í sameign eru ál/timbur hurðir.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.