Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Suðurhlíð 38B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
85.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
1.383.803 kr./m2
Fasteignamat
90.450.000 kr.
Brunabótamat
60.890.000 kr.
Mynd af Árni Björn Erlingsson
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Byggt 2003
Þvottahús
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
2258826
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
gott
Þak
upprunalegt
Svalir
Svalir með svalalokun
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Árni Björn Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna:
Glæsileg 3ja herbergja íbúð við Suðurhlíð í Reykjavík á fjórðu hæð (efstu) í lyftuhúsi með tveimur bílastæðum í lokaðri bílageymslu. Stórkostlegt útsýni til sjávar og umvafið göngu og hjólaleiðum til allra átta. Stutt í Öskjuhlíðina, ylströndina og veitingastaði. Um 19 fm yfirbyggður sólskáli er frá stofu (er ekki inní fermetratölu) og svo koma svalir út frá sólskála. Baðherbergi var endurnýjað nýlega og flísar í forstofu, þvottahúsi og sólskála. Einstaklega snyrtilegt hús með góðri sameign. Þvottaaðstaða er fyrir bíla í bílakjallara og er geymsla íbúðarinnar við bílastæði eignarinnar.

Um er að ræða eignina Suðurhlíð 38, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-03, fastanúmer 225-8826 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Suðurhlíð 38 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 225-8826, birt stærð 85.2 fm.

Lýsing eignar:
Forstofa: Með flísum á gólfi og innaf forstofu er hol með parketlagt gólf og góðu skápaplássi.
Borðstofa/Stofa/Eldhús: Borðstofa, stofa og eldhús, með parket á gólfi og renna saman í eina heild, sem gerir eignina einstaklega bjarta og fallega, útgengt er svo úr stofu yfir í um það bil 19 fm sólskála, með stórkostlegu útsýni yfir útivistaparadísina sem er þarna allt um kring að ógleymdri sjávarsýn.
Svefnherbergi 1: Stórt rúmgott með parket á gólfi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi/skrifstofa: Með parket á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, með sturtu og upphengdu salerni, handklæðaofni og snyrtilegri innréttingu, baðið var endurnýjað nýlega. Gert er ráð fyrir þvottavél á baðherberginu, þó einnig sé sér þvottahús innan eignarinnar.
Þvottahús: Flísalagt með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö Bílastæði: Tvö bílastæði eru í bílakjallara, þar er stór sameiginleg þvottaaðstaða.
Geymsla: Er við bílastæðin í bílakjallaranum.
Hjóla og dekkjageymsla: Sameginleg hjóla og dekkjageymsla við bílastæði húsins.
Garður: Sameiginlegur fallegur vel hirtur garður.


Glæsileg eign á eftirsóttum stað á höfuðborgarsvæðinu í góðu húsi, þar sem aðgengi er gott og stutt í alla helstu þjónustu og afþreyingu, verslun ásamt góðum gönguleiðum.


Nánari upplýsingar veitir:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2003
Fasteignanúmer
2258826
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
B2
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.820.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2003
Fasteignanúmer
2258826
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
B2
Númer eignar
1
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.820.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heklureitur 168 (406)
Bílastæði
Heklureitur 168 (406)
105 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
322
1137 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 306
Bílastæði
Heklureitur - íbúð 306
105 Reykjavík
97.2 m2
Fjölbýlishús
322
1110 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 204
Bílastæði
Heklureitur - íbúð 204
105 Reykjavík
104.7 m2
Fjölbýlishús
412
1050 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 606
Bílastæði
Heklureitur - íbúð 606
105 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
322
1239 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin