Fasteignaleitin
Skráð 17. júlí 2025
Deila eign
Deila

Laugavegur 168 íb212 Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
95.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
1.037.775 kr./m2
Fasteignamat
38.300.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2529752
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
12
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Svalir 10,3 m2
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsileg 3 herbergja íbúð með sérinngangi og bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:212, sem skilast fullbúin án gólfefna. Alls er eignin 95,3 fm að stærð ásamt geymslu á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 86,3 fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi m/eyju, borðstofu og stofu með útgengi á rúmgóðar svalir. Hjónaherbergi með loftháum skápum,  svefnherbergi með loftháum skápum, baðherbergi með vandaðri innréttingu og tækjum, þvottaherbergi (inn af baði) með vönduðum innréttingum og vaski, sér geymsla í sameign merkt: 0046, skráð 9 fm, og bílastæði merkt: B49. Hönnunarþema íbúðar er Hlýja (sjá mynd).  Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Aðalstein Bjarnason, fasteignasali í GSM: 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Heklureiturinn. 
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2529752
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B4
Númer eignar
9
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 168 íb411 Heklureitur
Laugavegur 168 íb411 Heklureitur
105 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
1046 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 1 (305)
Skoða eignina Skipholt 1 (305)
Skipholt 1 (305)
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
32
1025 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 212
Bílastæði
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Heklureitur - íbúð 212
105 Reykjavík
95.3 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 112
VRayCam075.jpg
Skoða eignina Laugaborg 112
Laugaborg 112
105 Reykjavík
105 m2
Fjölbýlishús
312
950 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin