Fasteignaleitin
Skráð 2. júlí 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Punta Prima

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
72 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
45.500.000 kr.
Fermetraverð
631.944 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
100020725
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR VIÐ STRÖND STRÖND - GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Vandaðar og fallegar 3ja herb. íbúð, 2 svefnh. + 2 baðh. í lyftublokk á frábærum stað við Punta Prima ströndina, stutt frá La Zenia Boulevard og Torrevieja, ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Aðeins nokkur skref á ströndina. Fallegur, gróinn sundlaugargarður. Frábærir veitingastaðir í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. 
Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð við sjóinn.
NÝTT Í SÖLU.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869,
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur.  karl@spanareignir.is. GSM 00354 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða glæsilegar 3ja herb. íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýlishúsi rétt við Punta Prima ströndina.  Grænt og fallegt umhverfi í vel hönnuðum sundlaugargarði. Sundlaug, heitur pottur, leiksvæði fyrir börnin, góð aðstaða fyrir slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar. Örstutt göngufæri á ströndina, þar sem hægt er að busla í sjónum eða setjast niður á skemmtilega veitingastaði. Nautilus og Punta Prima restaurant veitingastaðirnir eru í ca. 2-5 mín göngufæri og ca. 10 mín göngufæri á Asia Kitchen og fleiri góða veitingastaði við Punta Prima hringtorgið.

Íbúðin er rúmgóð með tveimur svefnherbergjum þe. rúmgóðu hjónaherbergi með sér baðherbergi og öðru svefnherbergi og baðherbergi. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Góðar svalir. Íbúðum á jarðhæð fylgir sér garður, íbúðum á efstu hæð fylgja sér þaksvalir.
Falleg hönnun og vandaðar innréttingar.

Stæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu.
Hægt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum gegn aukagjaldi.

Aðeins nokkur skref eru á fallega strönd sem liggur að Miðjarðarhafinu og þaðan eru göngu og hjólreiðastígar til Torrevieja og Playa Flamenca, La Zenia ströndina og Cabo Roig ströndina. 
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard,  glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð, gengi 1Evra=145ISK
Íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum: 314.000 Evrur. (45.500.000ISK) + kostn. við kaupin.

Á sama stað eru líka til íbúðir með 3 svefnh. + 2 baðh. Verð frá 349.000 Evrum (50.600.000ISK) + kostn. við kaupin.
Íbúðirnar eru í byggingu og afhendast haustið 2027.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100020725
Fasteignanúmer
100020725

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Spánn - Costa Blanca
86 m2
Hæð
423
503 þ.kr./m2
43.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
Spánn - Costa Blanca
76 m2
Fjölbýlishús
322
570 þ.kr./m2
43.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
Spánn - Costa Blanca
90 m2
Einbýlishús
423
517 þ.kr./m2
46.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella golf
Spánn - Costa Blanca
74 m2
Parhús
322
645 þ.kr./m2
47.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin