EIGNAVER 460-6060
Bjarkarlundur 29, (Asparlundur), Aðaldalshrauni. Góður fjárfestingarkostur. Sjá staðsetningu í kortasjáVandað og vel umgengið 64,2 fm. sumarhús úr landi Núpa við flugvöllinn í Aðaldalshrauni. Húsið er byggt 1988 og er á skjólgóðum stað þaðan sem stutt er í allar helstu náttúruperlur Norð-austurlands.
Eignin skiptist í; alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og útigeymslu sem gengið er í af palli hússins.
Svefnloft er yfir helmingi hússins. Lýsing eignar:
Anddyri, dúkur á gólfi,fatahengi og geymsluskápur.
Eldhús, mjög góð nýleg innrétting, helluborð og ofn ásamt lítilli uppþvottavél. gott vinnupláss.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað. Sturta, dúkur á gólfi og plötur á veggjum frá Þ. Þorgrímssyni, gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergin eru tvö í húsinu og er þau ágætlega rúmgóð. Parket á gólfum.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými. Parket á gólfi. Gengið út á stóra og skjólgóða timburverönd.
Útigeymsla, gengið í hana af verönd, einangruð og með rafmagni.
Annað:
- Húsið er rafmagnskynnt.
- Neysluvatnslagnir endurnýjaðar að mestu þegar bað og eldhús var endurnýjað fyrir u.þ.b. 7 árum.
- Húsið er í almennu góðu viðhaldi.
- Þak málað 2025
- Sannkallaður sælurætur.
- Frábær staðsetning.
- Neysluvatnslagnir í jörðu.
Sumarhúsið er eitt af 6 húsum sem eru til sölu núna á sama svæði og tilvalið í ferðaþjónustu. Fasteignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.
Nánari upplýsingar;
Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 /arnar@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 /tryggvi@eignaver.is