ALDA fasteignasala & Páll Konráð kynna í einkasölu: Falleg og björt 2ja herbergja íbúð á 1 hæð með sérafnotareiti í góðu lyftuhúsi með bílastæði í bílakjallara við Selvað 5 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@aldafasteignasala.is
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 84,8 fm. Íbúð 73,1 og geymsla 11,7 fm og skiptist hún í:
Anddyri, eldhús, stofu, þvottahús, baðherbergi, hjónaherbergi, sérafnotaréttur, geymslu og stæði í bílakjallara.
Nánar lýsing:
Forstofa með góðum skápum og flísum á gólfi.
Þvottahús með flísum á gólfi, skolvaski og vinnuborði.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu og eldunareyju sem hægt er að sitja við, eldhús er opið við stofu með tengi fyrir uppþvottavél.
Stofan er björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á hellulagðan sérafnotareit (10,5 fm)
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting og handklæðaofn.
Geymsla er í sameign og er 11,7 fm
Stæði fylgir íbúðinni í bílakjallara, merkt númer 31.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@aldafasteignasala.is
Staðsetning eignarinnar er mjög góð og barnvæn. Stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, verslanir og þjónustu ásamt fallegum gönguleiðum í Heiðmörk og víðar.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.