DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 10. ágúst 2026

Hörpulundur 7

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
199 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
954.271 kr./m2
Fasteignamat
156.400.000 kr.
Brunabótamat
103.850.000 kr.
Mynd af Júlían J. K.  Jóhannsson
Júlían J. K. Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1976
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2070943
Landnúmer
118924
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta.
Raflagnir
Rafmagn endurnýjað í öllu húsinu og ný tafla sett.
Frárennslislagnir
Metið í lagi 2004.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta 2004-2023.
Þak
Endurnýjað 2023.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Fallegt og viðhaldið einbýli innst í botnlanga við Hörpulund 7, 210 Garðabæ. Húsinu fylgir stór, gróin lóð með gróðurhúsi og tveimur geymslum með rafmagni. Heitur pottur er á viðarpalli og tvöfaldur bílskúr. Einstök eign í fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. 


Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D



Samkvæmt birtum fm er húsið 145,6 fm og bílskúr 53,4 fm samtals er eignin því 199 fm.


Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali


- Einbýli á einni hæð með stórum bílskúr.
- Stór gróðin og falleg lóð skráð 1290 fm og viðar pallur til suðurs og norðurs.
- 3-4 svefnherbergi.
- Heitur pottur, gróðurhús og tveir kofar.
- Kamína í setustofu, hellulögð innkeyrsla og hiti í gólfum á baði, anddyri og eldhúsi.




Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgott flísalagt anddyri með skápum. Hiti í gólfum. 
Til hægri úr anddyri er gengið inn í stórt forstofu herbergi sem áður voru tvö svefnherbergi.
Til vinstri úr anddyri er gengið inn í stórt alrými með sjónvarpsstofu, setustofu með kamínu, borðstofu og eldhúsi. Parket á gólfum.
Stórir gólfsíðir gluggar til suðurs úr alrými þar sem gengið er beint út á viðarverönd til suðurs. 
Eldhús með sérsmíðuðum innréttingum. Nýlegur bakarofn og helluborð. Flísar á gólfi og hiti í gólfum. Vola blöndunartæki. 
Úr eldhúsi er gengið inn í þvotthús og búr þaðan sem hægt er að ganga beint út á viðarpall til norðurs.
Úr alrými er gengið inn á svefnherbergjagang með tveimur svefnherbergjum auk baðherbergis.
Baðherbergið er með hornbaðkari og sérsmíðuðum innréttingum. Handklæðaofn á vegg og gluggi með opnanlegu fagi. Flísar á gólfum og hiti í gólfum. Vola blöndunartæki í baði og vask.
Minna svefnherbergið á svefnherbergjagangi er með góðum glugga með opnanlegu fagi og parketi á gólfum.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfum.


Garðurinn er mjög gróinn, tyrfður og skjólgóður með fallegum trágróðri, runnum og blómum. Tvennar viðarverandir eru í garðinum, ein stór til suðurs og önnur minni til norðurs. Heitur pottur er á suður verönd með skjólveggjum. Reist hafa verið tvö minni hús í garðinum og eru bæði með rafmagni. Annað húsið er með gróðurhúsi. 


Bílskúrinn er stór og rúmar tvo bíla, skráður 53,4 fm. Nýlega var sett epoxy á gólf og hann málaður. 


Innkeyrsla er hellulögð með hitalögn í stórum hluta. 


Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla og íþróttasvæði.


Framkvæmdir síðustu ára:
2024:
Rafmagn endurnýjað í öllu húsinu og ný tafla sett.
2024: Skipt um ofna og ofnalagnir endurnýjaðar.
2023: Skipt um járn og pappa á þaki. 
2023: Nýjar bílskúrshurðir á bílskúr og sett epoxy á gólf bílskúrsins.
2019: Innkeyrsla og bílaplan hellulagt og sett hitalögn í hluta innkeyrslu.
2004: Húsið endurnýjað að mikluleyti. Sérsmíðaðar innréttingar settar upp í eldhúsi og baðherbergi.
2004: Nýtt gólfefni sett á allt húsið. Gólfhiti settur á anddyri, baðherbergi og eldhús.
2004: Nýjar innihurðir settar upp og hurðahúnar eftir Arne Jacobsen.



Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.
Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1976
53.4 m2
Fasteignanúmer
2070943
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.100.000 kr.

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkihæð 12
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Birkihæð 12
Birkihæð 12
210 Garðabær
188,5 m2
Raðhús
422
Fasteignamat 148.400.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Sunnubraut 14
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Sunnubraut 14
Sunnubraut 14
230 Reykjanesbær
197,8 m2
Einbýlishús
827
581 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Bjarmaland 18
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Bjarmaland 18
Bjarmaland 18
245 Sandgerði
217,6 m2
Einbýlishús
715
434 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Urðarbraut 10
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Urðarbraut 10
Urðarbraut 10
250 Garður
191,5 m2
Einbýlishús
514
433 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin