Fasteignaleitin
Skráð 1. apríl 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares

ParhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
198 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
64.000.000 kr.
Fermetraverð
323.232 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
100010425
Húsgerð
Parhús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd, svalir og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT PARHÚS – FRÁBÆR STAÐSETNING* – *ÖRSTUTT Í GAMLA BÆINN, GOLF OG Á STRÖND*

Vönduð og falleg ný parhús á frábærum stað. Þrjú svefnherbergi,  þrjú baðherbergi. Stór verönd, sér garður með einkasundlaug. Einnig eru stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð og stór þakverönd yfir húsinu. Bílskúr í kjallara ásamt geymslu. Göngufæri í gamla bæinn í Los Alcazares, á fallega strönd og einnig göngufæri á La Serena golfvöllinn, verslanir og veitingastaði. Einnig fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, Roda golf, Mar Menor, Lo Romero og fleiri. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli. Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt parhús á góðum stað í sólinni. Algjör fjölskylduparadís.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869. 
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354  777 4277.


Hægt er að fá húsin fullbúin öllum húsgögnum gegn aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er á fallega strönd, La Serena golfvöllinn og iðandi mannlífið í Los Alcazares strandbænum. Fjöldi verslana og veitingastaða eru í nágrenninu og fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu.
Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf.

Verð frá  442.000 Evrum eða 64.000.000ISK + kostn. við kaupin. (miðað við 1 Evra = 145ISK)
Eignirnar verða tilbúnar til afhendingar í ágúst/september 2026.

Innifalið í verði er:
Frágengin lóð með  vökvunarbúnaði.
Lýsing bæði inni og úti.
Einkasundlaug og útisturta.
Aircon, með hitun og kælingu.
Rafdrifnar gardínur.
Gólfhiti á baðherbergjum.
Þakverönd.
Rafdrifin bílskúrshurð.

Los Alcazares er ekta spænskur bær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt parhús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, einkasundlaug, sér garður, þakverönd, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100010425
Fasteignanúmer
100010425

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dolores
SPÁNAREIGNIR - Dolores
Spánn - Costa Blanca
183 m2
Einbýlishús
423
340 þ.kr./m2
62.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
151 m2
Parhús
423
432 þ.kr./m2
65.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
246 m2
Fjölbýlishús
322
265 þ.kr./m2
65.200.000 kr.
Skoða eignina Keflavíkurgata 1
Keflavíkurgata 1
360 Hellissandur
170.6 m2
Einbýlishús
624
368 þ.kr./m2
62.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin