DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 10. apríl 2026

Skipholt 55

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
117.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
680.579 kr./m2
Fasteignamat
77.900.000 kr.
Brunabótamat
49.610.000 kr.
Eggert Ólafsson
Löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2013296
Landnúmer
103607
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Fóðraðar í sameign árið 2021
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
*ENDAÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR*
*LAUS STRAX*
 
Lögheimili eignamiðlun kynnir bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi, ásamt bílskúr, á góðum og fjölskylduvænum stað í Holta/Hlíðahverfi.  Birt stærð eignar er samtals 117,4 fm. og þar af er bílskúr 21,4 fm., skv. fasteignayfirliti.  Rúmgóðar vestursvalir.  Stór sameiginleg lóð með leiktækjum.  Örstutt er í leikskóla og grunnskóla og í  göngufæri við framhaldsskóla, verslanir, sundlaug, bókasafn, heilsugæslu, Klambratún o.fl.

Eignin skiptist í:  Anddyri/hol, eldhús, stofu, svefnherbergisgang, 3 herbergi og baðherbergi.  Sérgeymsla er í kjallara.  Bílskúr er í bílskúrslengju.

Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is

Endurnýjað og viðgert:
Húsið: 
Frárennsli var fóðrað í sameign árið 2020/2021. Skipt um glugga á austur- og suðurhlið hússins og hús múrviðgert/málað árið 2011.  Þak viðgert árið 2022.  Teppi endurnýjuð í stigagangi árið 2018.
Íbúð: Innréttingar, innihurðir, gólfefni og baðherbergi, var endurnýjað fyrir ca. 15 árum.  Innbyggð ný uppþvottavél.
Bílskúr: Nýleg bílskúrshurð er með nýlegum fjarstýrðum hurðaopnara.  Skipt um þrýstijafnara á hitagrind bílskúra árið 2026.

Nánari lýsing:  Komið er inn í rúmgott anddyri/hol með fataskáp, sem er opið inn í stofu og eldhús.  Í eldhúsi er innrétting sem er bæði hvít og með eikaráferð, ásamt veggföstu eldhúsborði, innbyggðri nýlegri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp/frysti.  Björt  stofa er með útgengt á rúmgóðar svalir.  Svefnherbergisgangur er með fataskáp.  Í baðherbergi er hvít innrétting, baðkar með glerskilrúmi og sturtustöng, handklæðaofn, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar kringum baðkar.  Hjónaherbergi er með fataskáp og viðarklæðningu við höfðagafl.  Tvö herbergi og annað er með fataskáp.  Parket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar.  Sérgeymsla, ásamt sameiginlegu þvottahúsi og vagna- og hjólageymslu, eru í kjallara.
 
Bílskúr:  Nýleg bílskúrshurð er með nýlegum fjarstýrðum hurðaopnara, upphitaður, niðurfalli í gólfi og rennandi köldu vatni.  Greiddar eru kr. 2.654 á mánuði í áætlaðan hitakostnað vegna bílskúrsins og er það innheimt af einum eigenda í bílskúrslengjunni.  Einn hitamælir er fyrir bílskúra í lengjunni.  Nýlega var skipt um þrýstijafnara á hitagrind bílskúra.

Annað:  Samkvæmt fasteignayfirliti er birt stærð íbúðar 90,9 fm., geymslu í kjallara 5,1 fm. og bílskúrs 21,4 fm., eða samtals 117,4 fm.  Eignin hefur verið í útleigu frá árinu 2021.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.  Nánari   upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/12/202145.950.000 kr.57.000.000 kr.117.4 m2485.519 kr.
23/08/201119.350.000 kr.28.000.000 kr.117.4 m2238.500 kr.
23/05/200718.540.000 kr.23.900.000 kr.117.4 m2203.577 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1970
21.4 m2
Fasteignanúmer
2013296
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
08
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.560.000 kr.

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjalbraut Vaðnes 4
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
DJI_0036.jpg
Kjalbraut Vaðnes 4
805 Selfoss
123.1 m2
Sumarhús
424
666 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Furulundur 4 B
Opið hús:27. apríl kl 16:15-16:45
Skoða eignina Furulundur 4 B
Furulundur 4 B
600 Akureyri
140.2 m2
Raðhús
514
641 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Reynimelur 82
Skoða eignina Reynimelur 82
Reynimelur 82
107 Reykjavík
73.6 m2
Fjölbýlishús
312
950 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 99
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
53 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin