DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 6. feb. 2026

Drekavogur 14

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
248.8 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
763.264 kr./m2
Fasteignamat
154.550.000 kr.
Brunabótamat
99.800.000 kr.
Mynd af Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Lögg. fasteignasali
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2020712
Landnúmer
105101
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Inngangur
Sérinngangur
Háborg og Þórunn Pálsdóttir   lgf  kynna  með stolti, glæsilegt mikið endurnýjað einbýli  með sex svefnherbergjum og  fallegum suðurgarði á þessum rólega stað miðsvæðis í höfuðborginni.  Húsið er 248,8 fm  þar af er bílskúr 32 fm.  Til viðbótar eru  24,9 fm undir súð.
Glæsilegt eldhús, stórar stofur, gestasnyrting og eitt herbergi á miðhæð.   Hjónaherbergi með fataherbergi inn af á efri hæð ásamt tveimur barnaherbergjum og baðherbergi. Í kjallara er stórt sjónvarpshol, tvö barnaherbergi, þvottahús og gott baðherbergi. Glæsilegur pallur út af stofu með tvennum tröppum niður í garð.  Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir   lgf s.773-6000 og thorunn@haborg.is.

Gengið er inn á miðhæð hússins. Strax á vinstri hönd er gestasnyrting, en á hægri hönd er 10,1 fm skrifstofa sem vel má nota sem svefnherbergi. Herbergið lokast með rennihurð.  Beint af augum er gengið inn í stóra samliggjandi stofu og borðstofu sem tengist stórum og góðum sólpalli til suðurs með tvöfaldri svalahurð.   Pallurinn  er eftir allri suðurhlið hússins og hluta vesturhliðar og tengist garðinum með tröppum bæði á suðurhlið og vesturhlið.  Gott skápapláss er í forstofunni sem opnast  bæði inn í stofuna og eldhúsið. 
Eldhúsið var fært á núverandi stað og gert á vandaðan hátt árið 2004 með steini í borðplötum og fallegum eikarinnréttingum með góðu skápaplássi.  Eldhúsið  er bjart með gluggum á tvo vegu, auk þess sem það opnast inn í borðstofuna sem er með stórum gluggum að garði.  Hægt er að loka milli eldhúss og borðstofu með rennihurð.

Gengið er upp á efri hæðina úr forstofunni.  Strax til vinstri glæsilegt baðherbergi með bæði sturtuklefa og baðkari og opnanlegum glugga.  Hjónaherbergið er stórt og bjart með stórum kvistglugga og góðu fataherbergi inn af.  Annað barnaherbergið er bjart og rúmgott með góðum skápum og kvistglugga, en hitt er minna með venjulegum glugga og þakglugga.  Það er nú notað sem geymsla.  Skv teikningu er þetta eitt 31,7 fm  herbergi.

Gengið er niður í kjallarann úr forstofu auk þess sem það er inngangur í hann bæði á norður og austurhlið hússins.  Þar er mjög rúmgott sjónvarpshol og tvö mjög góð barnaherbergi,annað 11,3 fm og hitt 9,9 fm með 2,4 fm fatageymslu inn af. Þar er einnig gott baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir sturtu.
Í kjallara er einnig gott þvottahús með innréttingum í vinnuhæð og útgangi á austurhlið hússins.
Bílskúrinn er staðsettur á lóðinni, en hann er 32 m2 með góðri gönguhurð á austurhlið hans.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð frá árinu 2003.  Þar ber helst að nefna frárennslislagnir og  stór timburpallur það ár með tvöfaldri svalahurð úr borðstofu.   Þakið var endurnýjað árin 2005/2006 alveg niður í sperrur sem voru þykktar og bætt í einangrun.  Settir kvistir og þakgluggi ásamt nýrri álklæðningu. Einnig voru baðherbergið á efri hæð og gestasnyrtingin á miðhæð gerð það ár.
Árið 2013 var garðurinn tekinn í gegn, einfaldaður og settar glæsilegar nýjar stéttar og hleðslur.

Sérlega heillandi og fallegt hús á með mörgum herbergjum og góðu flæði á þessum vinsæla og fjölskylduvæna stað.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir  lgf s:773-000 og thorunn@haborg.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1957
32 m2
Fasteignanúmer
2020712
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.750.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valsheiði 5
Skoða eignina Valsheiði 5
Valsheiði 5
810 Hveragerði
258.7 m2
Einbýlishús
514
537 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Lambasel 44
Bílskúr
Skoða eignina Lambasel 44
Lambasel 44
109 Reykjavík
240.6 m2
Einbýlishús
624
727 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Jakasel 38
Bílskúr
Skoða eignina Jakasel 38
Jakasel 38
109 Reykjavík
228.1 m2
Einbýlishús
825
701 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallavegur 14
Skoða eignina Hjallavegur 14
Hjallavegur 14
104 Reykjavík
95.6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
917 þ.kr./m2
87.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin