Borgir fasteignasala kynnir eignina Kambasel 40, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 205-7129 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Kambasel 40 er skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 226.2 fm.
Mikið endurnýjað og vel skipulagt raðhús á þremur hæðum í rólegum botnlanga í Seljahverfi í Breiðholti.
Nánari upplýsingar veita:Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is
Bjarklind Þór lgf, í síma 6905123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is
Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarmaður, í síma 8481997, tölvupóstur valgerdur@borgir.is
Nánari lýsing eignar:JarðhæðForstofa: gengið er inn af hellulögðu bílaplani, inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskápum og flísalögðu gólfi.
Gangur/Hol: inn af forstofu er komið inn í hol, þar er stigi í miðrými sem liggur upp á efri hæðir
Hjónaherbergi: með góðum fataskápum, gluggum og svalahurð til austurs. Þar er hægt að ganga út á verönd
Barnaherbergi: barnaherbergin eru tvö á jarðhæðinni
Baðherbergi: stórt og rúmgott baðherbergi með stórri sturtu, góðri innréttingu og baðkari
Bílskúr: innangengt er í bílskúr úr forstofu og þar er þvottaaðstaða með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Snjóbræðsla í bílaplani.
Önnur hæðEldhús: þegar komið er upp stiga er á vinstri hönd stórt nýlegt eldhús og borðstofa í einu rými. Innrétting er úr Fríform með innbyggðum ísskáp og frysti. Span helluborði og innbyggðri uppþvottavél
Snyrting: beint á móti stiga er lítið gestasalerni
Stofa: á hægri hönd frá stiga er stór og rúmgóð stofa og sjónvarpshol í einu rými.
Þriðja hæðHol: þegar komið er upp á þriðju hæð er þar gott sjónvarpshol og skrifstofuaðstaða. Þakgluggi til vesturs
Svefnherbergi: tvö rúmgóð svefnherbergi með þakgluggum
UmhverfiSeljaskóli, leikskólar, íþrótta- og leiksvæði og verslun eru í göngufæri.
Viðhald/framkvæmdirAndyri stækkað, flísalagt og settur Floore gólfhiti 2019.
Gólfhiti settur á bílskúr, flotað og flísalagt gólf 2019.
Eldhús stækkað og endurnýjað, nýjar raflagnir, fræst fyrir gólfhita, flotað og sett nýtt gólfefni 2021.
Allt á rishæð endurnýjað 2021: Ný loftklæðning, nýjir veggir, ný rakasperra, Floore gólfhitakerfi og nýtt gólfefni.
Fræst fyrir gólfhita, flotað og nýtt gólfefni í stofu 2022.
Sameiginleg bílastæði og botnlangi malbikað 2022.
Neðri hæð settur Floore gólfhiti, flotað og nýtt gólfefni 2024.
Allir veggir spaslaðir og öllum rafmagnstenglum og rofum skipt út samhliða fyrrgreindum framkvæmdum. Nýtt eins gólfefni á öllum rýmum nema baðherbergjum.
Allir gluggar málaðir að utanverðu 2024.
Austurhlið hússins: málning fjarlægð, minniháttar múrviðgerðir, grunnað og málað 2025. Auk þess að allt tréverk var málað.
Vesturhlið hússins: minniháttar múrviðgerðir og málað 2026.
Stofugluggi endurnýjaður