Eignamiðlun kynnir:
***Mjög vel staðsett einbýlishús innst í rólegum botnlanga***
Glæsilegt og vel skipulagt 222,7 fm einbýlishús á einni hæð, þar af 29,3 fm bílskúr og stór pallur við Furuvelli 26 í Hafnarfirði.
Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, sjónvarpsrými, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, snyrtingu og bílskúr. Samkvæmt fasteignaskráningu er heildareignin skráð 222,7 fermetrar sem skiptist í 193,4 fermetra íbúðarhluta og 29,3 fermetra bílskúr. • Stór garður með stórum palli og heitum potti.
• Stór og snyrtilegur bílskúr.
• Mjög rúmgott steypt upphitað bílastæði.
• Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
• Bjart og rúmgott alrými með aukinni lofthæð og fallegri loftalýsingu. Nánari upplýsingar veita Rögnvaldur Örn Jónsson, lgfs.í síma 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.isForstofa: Flísar á gólfi með stórum fataskáp.
Snyrting: Flísar á gólfi, falleg innrétting með stein á borði og upphengdu salerni.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa í opnu alrými með mikilli lofthæð, stórum gluggum og fallegri innfelldri lýsingu. Parket á gólfi. Útgengt út á glæsilegan sólpall til suðurs með heitum potti.
Eldhús: Ný eldhúsinnrétting frá KVIKK með vönduðum tækjum og með fallegum stein frá Steinprýði. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Einnig er framlenging á eldhúsi inní þvottahús sem hægt er að loka af með rennihurð.
Sjónvarpsstofa: Frábært fjölskyldurými með parket á gólfi. Hægt að bæta fjórða svefnherberginu við þar að hluta.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi með góðum fataskápum.
Svefnherbergi: Bæði mjög rúmgóð með parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott og allt hið vandaðasta, upphengt salerni, baðkar, sturta með innbyggðum VOLA tækjum, handklæðaskáp og innrétting með tveim vöskum og stein á borði. Baðherbergið er allt flísalagt gólf og veggir. Baðherbergið var allt endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Þvottahús: Innréttingar með góðu skápa- og borð plássi, þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð. Útgengi útí garð þar sem eru þvottasnúrur. Innangengt inní bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr: 29,3 fm með flísum á gólfi og sjálfvirkum opnara.
Húsið er allt hið glæsilegasta og hefur verið vel við haldið.
- Eldhús endurnýjað 2026
- Baðherbergi endurnýjað 2022
- Hús múrviðgert og málað 2025Nánari lýsing eignarinnar:Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma
588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook