Pálsson Fasteignasala kynnir:
Bjarta og snyrtilega 62,0 fm tveggja herbergja íbúð í kjallara við Selvosgrunn 7 í Reykjavík. Eignin er í snyrtilegu ástandi, með rúmgóðri stofu og eldhúsi í opnu rými, stórum gluggum og fallegri eldhúsinnréttingu.
* Rúmgott alrými með stórum gluggum.
* Snyrtilegt eldhús með hvítri innréttingu og viðarborðplötum.
* Flísalagt baðherbergi með sturtu.Nánari lýsing
Stofa og eldhús eru saman í björtu og rúmgóðu alrými með stórum gluggum sem veita góða náttúrulega birtu. Á gólfi er parket og eldhúsið er með hvítri innréttingu, viðarborðplötum, innbyggðum bakaraofni og eldunaraðstöðu.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi er flísalagt, með sturtu, salerni, handlaug og snyrtilegri innréttingu.
Sameiginlegt
þvottahús er á hæðinni
Geymsla er skráð 1,8 fm samkvæmt fasteignaskrá.
Selvosgrunnur 7 er í grónu íbúðahverfi í Reykjavík. Eignin er í nálægð við ýmsa þjónustu og útivistarsvæði.Notast hefur verið við gervigreind til að teikna inn húsgögn á eina mynd í auglýsingu
Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.