Víðimýri 4 - Fallegt og mikið endurnýjað 8 herbergja einbýlishús á rólegum stað á Brekkunni - Stærð 204,0 m²
Falleg og gróin lóð með hellulögðu bílaplani, timbur verönd með heitum potti og tveir geymsluskúrar
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Miðhæð, 80,1 m²: Forstofa/aðalinngangur, hol, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, svefnherbergi og auka inngangur á norðurhliðinni.
Ris, 43,8 m² en nýtanlegir fermetrar eru fleiri: Hol, þrjú svefnherbergi og snyrting.
Kjallari, 80,1 m²: Hol, tvö herbergi, snyrting, þvottahús, geymsla og bakinngangur.
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og gólfhita. Annar inngangur er á norðurhlið hússins, þar er flísar á gólfi og teppalagður stigi niður í kjallara.
Eldhús, nýleg (2022) hvít innrétting með ljósri bekkplötu og flísum á milli skápa. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Ljósar flísar á gólfum og gólfhiti.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með ljósu eikar parketi á gólfi og gluggum til þriggja átta.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, spónlagðri innréttingu, wc, sturtu, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Hiti er í gólfi.
Tvær snyrtingar eru í húsinu, ein í risi með flísum á gólfi og hluta veggja og hvítri innréttingu og önnur í kjallara, óinnréttuð.
Svefnherbergin eru 6, tvö ágætlega rúmgóð í kjallara, eitt á miðhæðinni með parketi á gólfi og lausum fastaskáp og þrjú í risinu, öll með parketi á gólfi. Stór fataskápur með rennihurðum er í hjónaherbergi og á bakvið skápinn er geymslurými undir súð.
Kjallarinn skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, snyrtingu, geymslu og þvottahús og er hann tilbúin undir málningu og gólfefni.
Miklar endurbætur hafa verið unnar í kjallaranum á síðustu mánuðum og má segja að hann sé tilbúin fyrir málningu og gólfefni. Lagður var gólfhiti í öll rými nema geymslu, stærstur hluti útveggja einangraður að innan og múraður, lagðar nýjar raflagnir í veggi o.fl. Öll gólf í kjallaranum eru flotuð. Gert er ráð fyrir að setja sturtu í þvottahúsinu og eru allar lagnir til staðar fyrir það.
Annað
- Drenað var með öllum hliðum hússins og það einangrað að utan árið 2024.
- Frárennsli var endurnýjað árið 2024 undir húsi og að lóðarmörkum í austur, steypt rör fengu að halda sér að hluta en þau þrædd með nýjum plaströrum.
- Inntök fyrir vatn og rafmagn endurnýjuð árið 2024.
- Ofnakerfi er lokaðkerfi með varmaskipti.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Nýr þakpappi, nýtt járn og ný kvistklæðning var sett árið 2016.
- Bílaplan og stétt að aðalinngangi er hellulagt og með hita í, lokað kerfi.
- Timburverandir eru við austur, suður og vesturhlið hússins. Heitur pottur/skel er á verönd á baklóðinni.
- Tveir geymsluskúrar eru á baklóðinni, annar á steyptri plötu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.