Miklaborg kynnir: Til sölu glæsileg 2ja herbergja íbúð á 1.hæð ástamt bílskúr með stúdíóibúð. Flest allt í báðum íbúðum hefur verið endurnýjað frá grunni að innan. Heildarstærð er 91,4 fm þá er íbúðin 65,8 og bílskúrinn 25,6 fm. Fyrir framan íbúðina er verönd með skjólveggjum og innkeyrsla fyrir framan bílskúr sem tekur nokkra bíla. Gólfhiti er í öllum rýmum og allar innréttingar og innviðir endurnýjaður fyrir ekki löngu síðan. Frábær eining sem hentar þeim sem vilja hafa leigjutekjur með búsetu eða leigja báðar íbúðirnar út.
Nánari lýsing: Sameiginlegur inngangur með einni annarri íbúð. Komið inn í forstofu með fataskáp. Við tekur dagrými með eldhúsi og stofu. Eldhús er með hvítri glans innréttingu og tækjum frá IKEA. Í eldhúsi er innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með. Stofan er rúmgóð með útgengi út á verönd með skjólveggjum. Svefnherbergi með fataskápum og útgengi út á verönd. Fallegt baðherbergi flísalagt að hluta, gólfsturta með glervegg,, innrétting með vaski og speglaskáp, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Sér geymsla er innan íbúðar. Samkvæmt teikningu er baðherbergi þar sem geymsla og þvottahús var og geymsla þar sem baðherbergi var áður. Gólfefni eru parket og flísar en gólfhiti er í öllum gólfum.
Bílskúr innréttaður sem stúdíóíbúð. Komið inn í litla stofu með góðu eldhúsi, við tekur baðherbergi með sturtuklefa, upphengdu salerni, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, innst er svefnaðstaða. Gluggar eru bæði í stofu og svefnkrók. Parket er á gólfum en allur skúrinn er með gólfhita.
Helstu endubætur sem hafa verið gerðar á eigninni:
2026 múr á svölum endurnýjaður og nokkur gler í íbúðinni
2023 þakpappi og álklæðning á þaki endurnýjuð
2020 allar frárennslislagnir undir íbúðinni eru endurnýjaðar og settur gólfhiti
2020 rest af frárennslislögnum undir húsi út í brunn fóðraðar
Hér er um að ræða frábærlega staðsetta eign í Digranesinu þar sem örstutt er í skóla og íþróttahús. Eign sem býður upp á ýmsa möguleika til búsetu og leigu.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 08/12/2018 | 31.400.000 kr. | 38.000.000 kr. | 91.4 m2 | 415.754 kr. | Já |
| 25/01/2010 | 17.250.000 kr. | 18.000.000 kr. | 91.4 m2 | 196.936 kr. | Já |
| 27/07/2006 | 14.775.000 kr. | 17.000.000 kr. | 91.4 m2 | 185.995 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 91,4 | 72 | ||
200 | 99,8 | 121,9 | ||
200 | 100,1 | 119,9 | ||
200 | 100,1 | 114,9 | ||
200 | 89,4 | 94,9 | ||
221 | 90,1 | 76,9 |