Miklaborg kynnir: Falleg hæð með sérinngangi á fyrstu hæð við Tómasarhaga 38, 107 Reykjavík. Eignin er skráð 115,6 fm með sérgeymslu hjá HMS. 3 svefnherbergi Eignin hefur fengið gott viðhald og tallsvert verið endurnýjuð. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Bílskúrsréttur fylgir húsinu.
Leitið upplýsinga hjá Friðrik í s. 616 1313
NÁNARI LÝSING: Fögurra herbergja íbúð með sér inngangi á 1. hæð á Tómasarhaga 38. (010101) á þessum vinsæla stað í Vesturubæ Reykjavíkur. Skv. HMS er íbúðin skráð 106,4 fm ásamt geymslu í kjallara (010002) sem er 9,2 fm skv. HMS. Íbúðinnifylgir hlutdeild í sameign, lóðarrégttindum og bílskúrsrétti. Komið er inn í forstofu og þar inn af er svefnherbergi. Úr forstofunni er gengið niður í sameignin. Þar er sér geymsla íbúðar ásamt og sameiginlegt þvottahús. Úr forstofu er gengið áfram inn í hol með innbyggðum fataskápum. 2 stór svefnherbergi og er annað þeirra með útgengi út á suður svalir. Endurnýjað eldhús með fallegri innréttingu og eyju. Baðherbergi með baðkari, nýlegri innréttingu og upphengt salerni. Gólfefni: flotuð gólf ásamt parketi á holi og í stofu. Flísar á baðherbergi.
Húsið hefur fengið gott viðhald og íbúðin verkið talsvert endurnýjuð. Nánar vísast um það til Upplýsingablaðs seljenda, en helæst má þar nefna að árið 2022 var garður sunnan við húsið tekinn í gegn. Jarðvegsskipt, þökulagt og hellur lagðar við hús sem og meðfram húsi. Þá var stétt steypt frá íbúð út á götu og svalir pússaðar og epoxy húðaðar. Sama ár fóru fram múrviðgerðir og steining á öllu húsinu. Þak yfirfarið, skorsteinar pússaðir og málaðir. Nýjir gluggar voru settir í allt húsið. Loks var ný rafmagnstafla í sameign fyrir íbúðir í T38. Árið 2021 var sett upp ný rafmagnstafla fyrir íbúðina með sér töflu fyrir eldhús, um leið og eldeldhús var endurnýjað og flutt til innan íbúðar. Árið 2020 var settur niður nýr brunnur í miðjum garði og árið 2019 voru skólp-, frárennsli- og drenlagnir endurnýjaðar og. kólprörin færð út fyrir húsið. Sama ár voru útitröppur múraðar, þakakkantur málaður og vatnsvarinn að ofan með sílan. Niðurfallsrör endurnýjuð. Þá var borað fyrir nýjum niðurföllum á svalir, svalagólf slípuð, flotuð og epoxy máluð. Lokas mágeta að 1998 var járn á þaki endurnýjað og þakkantur endursteyptur. Á það er bent að innra skipulagi íbúðar hefur bverið breytt og það er því ekki í samræmi við upprunalegar samþykktar reikningar.
Tómasarhagi 38, 1. hæð er sérlega eiguleg og falleg fjögurra herbergja íbúðarhæð á eftirsóttum og vinsælum stað í Högunum í Vesturbæ Reykjavíkur. Öll þjónusta innan seilingar og gönguleiðir með sjávarsíðunni .
Allar nánari uopplsingar veitiur Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg. fasteignasali í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 22/03/2023 | 72.300.000 kr. | 93.000.000 kr. | 115.6 m2 | 804.498 kr. | Já |
| 02/10/2020 | 56.950.000 kr. | 54.100.000 kr. | 115.6 m2 | 467.993 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 124,8 | 117,9 | ||
104 | 77,8 | 67,9 | ||
200 | 79,1 | 63,9 | ||
112 | 132,2 | 89,9 | ||
110 | 137,3 | 141,9 | ||
110 | 131,1 | 139,9 |