Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir vel skipulagða þriggja herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu, með fallegu útsýni við Naustabryggju 38
Umrædd eign er staðsett á 2. hæð og er skráð skv. fasteignamati HMS 86,2 m2 en þar af er geymslan 6,8 m2.
***Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 69.800.000,-*** EIGNIN ER LAUS VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS
Komið er inn í mjög snyrtilega sameign og gengið upp nokkrar tröppur að stigapalli íbúðarinnar en það eru alls fjórar íbúðir í stigaganginum.
Engin lyfta er í húsinu. Rúmgóðar suður svalir skráðar 17,3 m2.
Nánari lýsing:
Forstofa: parket á gólfi, fataskápur.
Gangur: parket á gólfi.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, mjög fallegt sjávarútsýni, yfir bryggjuna og í átt til Esju, björt stofa með nettum útsýnis svölum sem snúa í norður.
Eldhús: parket á gólfi, viðarlituð eldhúsinnrétting góðu vinnuplássi og bakaraofn í vinnuhæð. Rúmgóð eyja hvít að lit, sem hægt er að sitja við og njóta útsýnisins í stofunni.
Þvottahús: Innaf eldhúsi er rúmgott þvotthús með hillum, borði og skolvaski.
Baðherbergi: flísar á gólfi með sturtu og upphengdu salerni ásamt innréttingu undir vaski.
Herbergi I: parket á gólfi og fataskápar.
Herbergi II: parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar, útgengi út á stórar suðursvalir(17,3 m2).
Geymsla: sér geymsla staðsett í sameign íbúðar á 1. hæð.
Í sameign er sér geymsla íbúðar ásamt sér merktu bílastæði.
Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla staðsett á 1. hæð í sameign, fyrir framan húsið eru bílastæði sem tilheyra húsinu. Sé gengið bak við húsið þá er fallegur göngustígur á trébrú við sjávarmálið, ásamt bekkjum. Umrædd eign er vel staðsett í Bryggjuhverfinu, upp á bæði útsýni og aðkomu að gera. Stutt í verslun og þjónustu upp á Höfða. Um mjög vel skipulagða eign er að ræða með tveimur góðum herbergjum og glæsilegu sjávarúsýni sem vert er að kynna sér vel.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.