DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:04. nóv. kl 17:30-18:00
Skráð 1. nóv. 2026

Kumlamýri 10

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
205 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
731.220 kr./m2
Byggt 2025
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
25218792
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

REMAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu glæsilegt og vel skipulagt 205 fm, 6 herbergja parhús með innbyggðum bílskúr að Kumlamýri 10 á Álftanesi.

⭐️ HÚSIÐ ER TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR SAMHLIÐA KAUPSAMNINGI ⭐️

✅ Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar
✅ Innbyggður bílskúr
✅ Loftskiptikerfi

Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að utan og klætt bárujárni og timbri. Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar og rúmgott alrými gera húsið bjart og opið. Garðurinn snýr vel við sólu.

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Neðri hæð: Anddyri, hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, stofa/borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Efri hæð: Sjónvarpsstofa, tvö rúmgóð barnaherbergi og baðherbergi.

Skilalýsing:
Útveggir: Steinsteyptir, einangraðir að utan og klæddir bárujárni og timbri. Útiljós eru frágengin.
Gluggar: Ál/tré-gluggar með K-gleri.
Þak: Klætt báruáli. Þakrennur og niðurföll eru undir klæðningu.
Svalir: Svalahandrið er frágengið. Svalalokanir fylgja ekki.
Lóðin: Skilað grófjafnaðri við afhendingu. Sérstæði fylgja í samræmi við skipulagsskilmála.
Hitakerfi: Gólfhiti á neðri hæð, fullgerður og frágenginn án hitastýringa. Ofnakerfi á efri hæð, frágengið að ofnum.
Veggir: Steyptir útveggir og hlaðnir innveggir eru sandspartlaðir og grunnaðir.
Loft: Steypt loft á 1. hæð eru sandspörtluð og grunnuð. Timburloft á 2. hæð er klætt, sandspartlað og grunnað.  
Gólfefni: Gólf eru frágengin í rétta hæð undir endanlegt slitlag. Flísar eru á baðherbergjum en önnur gólfefni fylgja ekki.
Baðherbergi: Flísalögð en án tækja og sturtuskilrúma.
Stigi: Handrið, handlistar og stáltröppur fylgja ekki. Efri trappa er til bráðabirgða og gert er ráð fyrir að endanleg útfærsla verði í samræmi við handrið.
Lagnir: Fráveitulagnir eru fullgerðar frá niðurföllum og hreinlætistækjum. Neysluvatnslagnir eru tengdar við stofninntak og frágengnar að tækjum.
Rafkerfi: Heimtaug er tengd og frágengin. Ídráttarrör fyrir raf- og boðlagnir eru fullgerð. Rafmagnstafla er fullgerð m.t.t. vinnuljósa og uppsetts rafbúnaðar. Vinnuljós eru í hverju herbergi.
Loftræsting: Loftskiptikerfi frá Ventum. 

Byggingaraðili: Atlas Verktakar ehf.
Arkitekt: Teikna teiknistofa arkitekta
Raflagna- og lýsingarhönnun: Liska
Lagnahönnun: Verkfræðistofan Vektor ehf.

Umhverfið:
Kumlamýri er ný gata á Álftanesi. Hún liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast fimm botnlangar. Við hvern botnalanga standa fjögur parhús með alls átta íbúðareiningum með sameiginlegu götu-og íverusvæði í miðju.Megin hugmynd deiliskipulagsins fyrir svæðið er að viðhalda, eftir því sem verða má, því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes. Því er leitast við að húsin myndi óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði í stað þess að þau myndi hefðbundna götumynd. Nýja hverfið liggur þétt að grónu hverfi og er því stutt í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring.

Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald, sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. Kaupandi greiðir 0,8% stimpilgjald af fasteignamati, sem sýslumaður áætlar fyrir kaupsamning.

Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 7C 201
Hleðslustöð
Skoða eignina Eskiás 7C 201
Eskiás 7C 201
210 Garðabær
106,1 m2
Fjölbýlishús
514
942 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Langafit 24
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Langafit 24
Langafit 24
210 Garðabær
190,6 m2
Einbýlishús
724
889 þ.kr./m2
169.500.000 kr.
Skoða eignina Flókagata 54
Bílskúr
Skoða eignina Flókagata 54
Flókagata 54
105 Reykjavík
208,7 m2
Hæð
514
857 þ.kr./m2
178.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurgata 2
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Víkurgata 2
Víkurgata 2
210 Garðabær
159,9 m2
Fjölbýlishús
412
872 þ.kr./m2
139.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin