Meistaravellir 31, 107 Reykjavík. Góð 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi á
frábærum stað í Vesturbænum. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi og geymslu í sameign. Búið að setja upp 4
rafbílahleðslur á sameiginlegu bílaplani.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 78,0 fm; íbúðin er 74,1 fm og geymsla 3,9 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2024: 57.500.000 kr
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er úr snyrtilegri sameign beint inn í rúmgóða forstofu. Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting á tveimur veggjum. Gert ráð fyrir uppþvottavél. Borðkrókur við glugga.
Stofan: Björt og rúmgóð með útgengt á svalir til suðvesturs. Óhindrað útsýni þar sem þetta er fremsta hús. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi og bjart.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi sem nýtist vel.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og dúkur á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél.
Svalir: Frá stofu er gengið út á góðar suðvestur svalir.
Geymsla: Í sameign er 3.9 fermetra geymsla.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og sér þurrkherbergi, einnig hjóla- og vagnageymsla. Sameign er mjög snyrtileg.
Rólegt og gott umhverfi þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu, leik- og grunnskóla og Sundlaug Vesturbæjar. Stutt í strætó.
Örstutt í fallegt útivistarsvæði og gönguleiðir .
Allar nánari upplýsingar veitir þjónustuver Procura, fasteignir@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda: Opinber gjöld vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.