** BÓKIÐ SKOÐUN **
** elin@allt.is - 867-4885 **
ALLT fasteignasala kynnir til sölu Hólagötu 13 Njarðvík, efri hæð og bílskúr með í stúdíóíbúð. Fjölskylduvæn og vel staðsett eign í Njarðvík, í stuttri göngufjarlægð frá helstu þjónustu eins og verslunum og grunn- og leikskólum. Heildarstærð eignarinnar er
152,8 fm, þar af er íbúðin 130,3 fm og bílskúrinn 22,5 fm.
Eignin er tóm og getur verið afhent fljótlega! Hafið samband fyrir nánari upplýsingar:
Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, tölvupóstur elin@allt.is og sími 867-4885Helstu eiginleikar:3 svefnherbergi.
Bílskúr með útleiguíbúð - Góðir tekjumöguleikar!
Fataherbergi innaf hjónaherbergi.
Nýleg eldhúsinnrétting og parket
Búið að endurnýja girðingu að framan og á hlið.
Hluti af dreni endurnýjað.
Endurnýjaðir gluggar í svefnherbergjum.
Þak nýlega málað og yfirfarið.
Lokað veitukerfi.
Eignarlóð. Nánari lýsing:Forstofa: Lakkaður stigi með góðu geymsluplássi undir stigum.
Þvottahús og
geymsla: Á stigapalli er þvottahús og geymsla, í geymslunni er búið að setja salerni.
Stofa og
borðstofa: Með parketi á gólfi.
Eldhús: Með nýlegri hvítri innréttingu, gott skápa og vinnupláss.
Þrjú svefnherbergi á gangi, þar af hjónaherbergi með sér fataherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt, með nýlegri borðplötu á innréttingu, vaski, salerni og baðkari.
Geymsluloft: Fyrir ofan íbúðina, aðgengilegt með fellistiga.
Svalir: Rúmgóðar og sólríkar svalir og möguleiki að gera íverustað ofan á bílskúr.
Bílskúr: Innréttaður sem stúdíóíbúð.
Einstaklega góð fjölskyldueign með tekjumöguleika í útleiguíbúðinni. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.