BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FORSALIR 1 ÍBÚÐ 401, 201 Kópavogur. Þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi í Salahverfi, svalir með svalalokun, bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Gott aðgengi, lyfta, myndavéladyrasími, sjálfvirkir hurðaopnarar á helstu hurðum í sameign,
Góð staðsetning stutt er í alla almenna þjónustu, meðal annars í leikskólann Fífusali, Salaskóla, Sundlaug, Gerplu, Nettó, Heilsugæslu og apótek. Smellið hér fyrir staðsetningu.Forsalir 1 er steypt sjö hæða 26 íbúða fjölbýlishús. Eignin skiptist í íbúð 82.4 m² og geymslu 9.2 m², samtals 91.6 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, gangur/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla, bílastæði í bílakjallara, inngangur, hjóla- og vagnageymsla og sorptunnugeymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með tvöföldum fataskáp, þaðan er innangengt í þvottahús.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, þaðan er útgengt út á yfirbyggðar svalir til austurs.
Eldhús er hálfopið við stofu, L-laga innrétting, borðkrókur, AEG helluborð, ofn og vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp.
Herbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, veggskápur, salerni, baðkar og hanklæðaofn, gluggi.
Þvottahús, vinnuborð með vask, pláss fyrir tvær vélar.
Gólfefni: Parket er á stofu og borðstofu, gangi/holi og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Forsalir 1 er sjö hæða fjölbýlishús,í húsinu eru 26 íbúðir, tvær á 1. hæð (jarðhæð), fjórar á 2.- 7. hæð. Aðalinngangur er á 2. hæð, þar eru sameiginleg bílastæði.
Bílgeymsla er undir bílastæðum við austurhlið að mestu falin í jörð, þar eru 26 bílastæði. Lyfta er í húsinu. Sameiginleg lóð er frágengin.
Húsfélag er starfrækt í eigninni. Lóð er sameiginleg 4924.0 m² leigulóð í eigu Kópavogsbæjar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-6255.Stærð: Íbúð 91.6 m². Bílastæði 0.0 m². Samtals 91.6 m².
Brunabótamat: 69.650.000 kr.
Fasteignamat: 51.410.000 kr
Byggingarár: 2001.
Byggingarefni: Steypa.