Hraunhamar fasteignasala og Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali kynna rúmgóða og bjarta 118,5 fm 3-4 herbergja endaíbúð á 2 hæð merkt 202 ásamt stæði í lokaðri bílageymslu í Engjaseli 52. Samkvæmt birtum fm er íbúðin 97,2 fm, aukaherbergi í kjallara 21,3 fm ásamt sérgeymslu í kjallara sem er ekki inni birtum fm. Herbergið í kjallaranum er í útleigu. Bílastæði eru malbikuð.
Lóð er frágengin og fyrir framan hús eru leiktæki. Búið er að merkja stæði fyrir íbúðina en því hefur ekki verið þinglýst á eignina. Sérþvottahús er innan íbúðar og í sameign á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla og vagnageymslu.
Nánari lýsing:
Hol er með flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með flísum á gólfi og er útgengt á svalir.
Eldhús er með viðarinnréttingu með bakarofni í vinnuhæð, helluborði, háf og borðkrók. Samkv. teikningu á að vera innangengt í þvottahús en búið er að loka hurðargati.
Hjónaherbergi er rúmgott.
Svefnherbergin eru tvö og þarf að fara í gegnum fremra herbergið til að komast í það innra. Hægt er að breyta því aftur eins og á teikningu.
Baðherbergi er með
flísum á gólfi og veggjum að hluta. Handklæðaofni, handlaug og sturtu.
Þvottahús var stækkað og nýtt sem herbergi. Lokað var frá eldhúsi. Mögulegt að færa í fyrra horf.
Herbergi á jarðhæð er 21,3 fm og er í útleigu.
Geymsla á jarðhæð er ca.6 fm ekki inni birtum fermetrafjölda íbúðarinnar.
Seljendur láta fylgja með harðparket frá Byko á íbúðina. ATH. Íbúðin er ekki alveg samkvæmt teikningu vegna breytinga sem hafa verið gerðar. Mynd er ekki af réttu bílastæði.Allar nánari upplýsingar veita:Ársæll Ó Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í s. 896-6076 eða á netfangið
arsaell@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983 og fagnar því 41 ára afmæli á árinu 2024.
Hraunhamar í farabroddi í 41 ár! – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.