Lind fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með þremur svefnherbergjum á fjölskylduvænum stað í lokuðum botnlanga við Laufrima 41 í Reykjavík. Eignin er samtals 133,4 fermetrar að stærð og skiptist í 107,6 fermetra íbúðarrými og 24,8 fermetra innbyggðan bílskúr.
Virkilega skjólgóð afgirt verönd í bakgarði sem snýr til suðurs. Tyrfð flöt tekur við af verönd í bakgarði, kaldur geymsluskúr er á framlóð. Verönd sem nýtur sólar frá morgni til kvölds. Hellulögð stétt og bílastæði fyrir framan hús með snjóbræðslu.Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, sjónvarpsrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi , loft sem aðgengilegt frá stofu sem getur nýst á margvíslegan hátt, og bílskúr með þvottaaðstöðu. Gott geymslupláss fyrir ofan baðherbergi og hluta af bílskúr.Nánari lýsingForstofa með flísalögðu á gólfi og fataskáp
Stofa með flísalögðu gólfi og aukinni lofthæð. Gluggar til suðurs út útgengi á verönd .Verönd er afgirt, skjólgóð og snýr til suðurs. Stigi frá stofu upp á parketlagt loft sem er hægt að nýta á ýmsa vegu.
Eldhús með upprunalegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu , Electrolux bakaraofn ásamt keramik Electrolux helluborði með viftu yfir, flísalagt gólf.
Sjónvarprými með flísalögðu gólfi.
Hjónaherbergi með dúk á gólfi og fataskáp, gluggar á tvo vegu.
Barnaherbergin eru tvö með dúk á gólfi og fataskáp í öðru þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta,,og upphaflegar innréttingar.
Bílskúrinn er 24,8 fermetrar að stærð. Aukin lofthæð og gott geymsluloft yfir hluta. Og inn af þvi er geymsluloft sem er yfir baðherberginu. Flísar á gólfi, skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Laufrima í Reykjavík þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, menntaskóla, íþróttasvæði, golfvöll, Egilshöll auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Glæsilegar hjóla- og gönguleiðir í nágrenni við náttúruna, fjöruna og sjóinn.
Allar upplysingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali i sima 822 2123 eða helga@fastlind.is