Fasteignaleitin
Skráð 14. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Austurmörk 30 - 303

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
54.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.900.000 kr.
Fermetraverð
839.122 kr./m2
Fasteignamat
17.550.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elínborg María Ólafsdóttir
Elínborg María Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532249
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýir
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Valborg fasteignasala kynnir í sölu nýjan íbúðakjarna á Tívolíreitnum í Hveragerði.
Austurmörk 30 er þriggja hæða fjölbýlishús með 13 íbúðum í kjarnanum.
Geymslur eru á fyrstu hæð.
Íbúðirnar eru vel skipulagðar, tveggja til fjögurra herbergja og með sérsmíðuðum innréttingum.
Stærð íbúða er frá 54.7m² til 86.1m²
Íbúðirnar eru byggðar samkvæmt ströngustu kröfum Umhverfisstofnunar og hafa þær hlotið Svansvottun við lok framkvæmda.
Íbúðirnar eru með loftræsikerfi með varmaendurvinnslu og einnig er vélrænt útsog í geymslum.
Glæsilegar íbúðir í góðum stað miðsvæðis í Hveragerði. 
ATH. að myndir eru annarsvegar úr sýningaríbúðum og hinsvegar tölvuteiknaðar og eru einungis til viðmiðunar. 


Austurmörk 30 - íbúð 303 er 54,7m²  tveggja herberja íbúð á þriðju hæð.
Eignin skiptist í íbúð 51,4 m² og geymslu 3,3m² samtals 54,7m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. 
Eignin telur forstofu, stofu, eldhús, eitt svefnherbergi og baðherbergi.


Nánari lýsing:
Forstofa: flísalögð forstofa, þar er fataskápur.
Alrými: eldhús og stofa eru saman í opnu rými og þar er útgengt á svalir.
Eldhús: falleg, ljós innrétting með bakarofni í vinnuhæð, spanhelluborð, vifta, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti.
Hjónaherbergi: með þreföldum fataskáp.
Svefnherbergi I og II: fataskápur í báðum herbergjum.
Baðherbergi: innrétting með handlaug og skápaplássi, upphengt wc, "walk-in" flísalögð sturta. Baðherbergi er flísalagt.
Sér geymsla fylgir hverri íbúð og er hún staðsett á 1. hæð hússins.

Nánar um eignina:
Austurmörk 30 er 13 íbúða bygging, staðsteypt, einangruð og klædd að utan með Áltrapisuklæðningu. Þakplata eru staðsteypt og einangruð að ofan. Gluggar og hurðir eru álklæddir timburgluggar. Gengið er inní íbúðir í hverju húsi af opnum svalagöngum. Ein lyfta er í húsinu. Á fyrstu hæð fylgja hellulagðir sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir.
Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós úr vönduðu slitsterku eikar melamin efni að utan en gráu melamin efni að innan.
Vönduð heimilistæki frá AEG eru í eldhúsum. Kæli- og frystiskápur sem og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Spanhelluborð og gufugleypir yfir. Borðplötur eru plastlagðar. Blöndunartæki eru frá Grohe og eldhúsvaskur frá Poats.
Inngangs og svalahurðir íbúða eru álklæddar timburhurðir frá Ideal Combi.
Baðinnréttingar eru sérsmíðaðar, vaskaskápar eru úr slitsterku eikar melamin efni.
Gólfhiti er í gólfi baðherbergja. Hefðbundið ofnakerfi með hitastýrðum lokum er í öðrum rýmum.
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð. Vélrænt útsog er í geymslum.
Hjóla og vagnageymslur eru á 1. hæð hússins

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. 

Hveragerði - blómstrandi bær
Í Hveragerði blómstrar mannlífið. Útivist, afþreying, listir og matarmenning er meðal þess sem samfélagið í Hveragerði hefur upp á að bjóða. Í Hveragerði er hægt að vera laus við ys og þys borgarinnar sem þó er í seilingarfjarlægð.
Hveragerði er tilvalinn búsetukostur fyrir alla, jafnt barnafjölskyldur sem og þá sem vilja breyta til og koma sér fyrir á rólegum stað innan um ósnortna náttúru. Bærinn er í einungis 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og almenningssamgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu eru tíðar.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina AUSTURMÖRK 30A - 203
Austurmörk 30A - 203
810 Hveragerði
54.7 m2
Fjölbýlishús
211
832 þ.kr./m2
45.500.000 kr.
Skoða eignina Austurmörk 30 - 203
Austurmörk 30 - 203
810 Hveragerði
54.7 m2
Fjölbýlishús
211
832 þ.kr./m2
45.500.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34 íbúð 309
Eyravegur 34 íbúð 309
800 Selfoss
66.1 m2
Fjölbýlishús
312
710 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 (403)
Opið hús:17. sept. kl 17:00-18:00
Hnjúkamói 16 (403)
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin