Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi með rúmgóðum suðursvölum með svalalokun og sérmerktu bílastæði í bílakjallara á eftirsóttum stað í Úlfarsárdal.- Þriðja hæð í lyftuhúsi
- Rúmgóðar suðursvalir með svalalokun
- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara
- Bjart og opið alrými
- Stutt í helstu þjónustu
Tveggja herbergja íbúð þar sem hver fermetri nýtist vel, staðsett á þriðju hæð í snyrtilegu lyftuhúsi á vinsælum stað í Úlfarsárdal.
Forstofa með fataskáp.
Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými með góðu plássi fyrir borðstofu og setustofu. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir með svalalokun þar sem njóta má sólar stóran hluta dags.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er snyrtilegt með sturtu, innréttingu og þvottaaðstöðu.
Sérgeymsla er í sameign og íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Tvær vagna og hjólageymslur.
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði. Fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni gera staðsetninguna einstaklega eftirsóknarverða.
Birt stærð samkvæmt HMS 65 fm2
Hentar vel fyrstu kaupendum eða pari.
Nánari upplýsingar veita:Sara Wium Hermannsdóttir astmf. í S: 891-6193 eða sara@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.