Miklaborg kynnir einbýlishús á tveimur hæðum í Árbæ.
Á neðri hæð eru anddyri, gestasalerni, eldhús, þvottahús, stofa og borðstofa.
Efri hæðin skiptist í fimm svefnherbergi og baðherbergi.
Á allri neðri hæðinni eru flísar frá Parka og gólfhiti.
Úr borðstofu er gengið út á pall.
Nánari upplýsingar veitir Jason Guðmundsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali, jason@miklaborg.is, sími 899 3700.
Nánari lýsing:
Neðri hæð er anddyri með skápum og þar inn af er gestasalerni.
Eldhúsið er rúmgott með HTH-innréttingu, búrskáp og borðkrók. Þar eru AEG-tæki, ofn í vinnuhæð og spanhelluborð. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús með innréttingu, vinnuborði og skápum undir þvottavél og þurrkara. Þaðan er hurð beint út.
Stofan er með stórum gluggum sem snúa til suðurs og vesturs. Í borðstofunni eru gólfsíðir gluggar og tveir þakgluggar. Þaðan er útgengt á pall. Undir stiganum upp á efri hæð er geymsla.
Bílskúrinn er 28,5 fm með lökkuðu gólfi, bílskúrshurðaopnara og vaski. Sérinngangur er í bílskúrinn við hlið aðalinngangs hússins.
Efri hæð eru fimm svefnherbergi, baðherbergi og tvennar svalir sem snúa til suðurs og norðurs. Harðparket frá Stepp er á öllum gólfum nema á baðherbergi. Hjónaherbergið er stórt, með skápum og plássi fyrir setustofu. Þaðan er útgengt á suðursvalir. Tvö svefnherbergi eru með skápum og útgengi á norðursvalir og eitt með skáp og útgengi á suðursvalir. Fimmta svefnherbergið var upphaflega sjónvarpsherbergi en var breytt í svefnherbergi við endurbætur hússins. Þar eru sams konar fataskápar og í öðrum herbergjum.
Baðherbergið er rúmgott með gólfhita, flísalagðri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni og glugga. Þar eru skápar og spegill með lýsingu og hita.
Yfir efri hæðinni er geymsluloft með gluggum á báðum göflum.
Stór pallur er sunnan og vestan við húsið. Á honum er Julia-garðhýsi með vaski og lítilli innréttingu. Við vesturhlið hússins er yfirbyggð eldunaraðstaða.
Á lóðinni er stórt bílaplan með plássi fyrir nokkra bíla. Hiti er í stétt við tvö bílastæði næst húsinu.
Nánari upplýsingar veita
Jason Guðmundsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali, jason@miklaborg.is, sími 899 3700.
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 02/03/2015 | 57.200.000 kr. | 53.500.000 kr. | 225.1 m2 | 237.672 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
110 | 225,1 | 169,5 | ||
112 | 211,6 | 156,9 | ||
230 | 205 | 119,9 | ||
109 | 262,6 | 173,7 | ||
260 | 204,4 | Tilboð | ||
260 | 207 | 114,9 |