Elka lgf. og Fasteignasalan TORG kynnir til sölu frábært 12-15 hesta hesthús við Fluguvelli 3 á Andvaravöllum á hinu vinsæla hesthúsasvæði Spretts á Kjóavöllum í Kópavogi.
Um er að ræða 121,4 fm hesthús sem hefur verið mikið endurbætt á síðustu árum og býður upp á mjög góða aðstöðu fyrir hestamenn.
Húsið stendur neðst í götunni á afar góðum stað innan hverfisins þar sem útsýni er yfir keppnisvölli og svæðið í kring.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Nánari lýsing;
Húsið var tekið talsvert í gegn á árunum 2018–2019 þegar því var breytt úr 18 hesta húsi í 12–15 hesta hús. Þá var meðal annars jarðvegsskipt í stíum og stíugólf steypt, sem bætti verulega aðstöðu og aðbúnað í húsinu. Innra byrði hesthússins var jafnframt uppfært og nýjar stíur settar upp.
Í húsinu er góð vinnuaðstaða ásamt rúmgóðri hlöðu, kaffistofu með eldhúsaðstöðu og snyrtingu.
Hnakkageymsla er undir stiga. Húsið hefur verið vel viðhaldið og mikið lagt í endurbætur á síðustu árum.
Árið 2025 var heitt vatn tekið inn í húsið og hitakerfi uppfært, meðal annars með hitablásara í hesthúsi og ofnum í kaffistofu og snyrtingu. Vatnslagnir í húsinu voru jafnframt endurnýjaðar á árunum 2018–2019.
Endurbætur á síðustu árum m.a.:
Jarðvegsskipt í stíum og stíugólf steypt
Nýjar stíur úr ryðfríu stáli og Govaplast klæðning í hesthúsi
Allir útveggir klæddir með álklæðningu (2019)
Nýir gluggar og hurðir (2019)
Þakrennur og þakkantar endurnýjaðir (2019)
Loft endurnýjuð og LED lýsing sett upp í hlöðu
Vatnslagnir endurnýjaðar (2018–2019)
Heitt vatn tekið inn í húsið og hitakerfi uppfært (2025)
Frárennsli og dren við austurgafl hússins var einnig endurnýjað árið 2019 og gert ráð fyrir mögulegri tengingu við framtíðarskolpkerfi.
Hér er um að ræða mjög vel staðsett hesthús á eftirsóttu hesthúsasvæði þar sem mikil vinna hefur verið lögð í endurbætur og viðhald á síðustu árum.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.