Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 3 í GarðabæUm er að ræða nýbyggingu í litlu fjölbýli með lyftu. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með ál- og bambusklæðningu. Í boði eru góðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Útsýni er úr flestum íbúðum og timburverönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megingólfefna, en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði eru á lóð. Áætluð afhending íbúða er í nóvember/desember 2026.
Sjá heimasíðu GrásteinsmýriNánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lgf :845-8958 eða jorunn@haborg.is, Katla Hanna Steed, lgf, s: 822-1661 eða katla@haborg.is og Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða thorunn@haborg.is og Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og kristinhogna@haborg.is.Nánari lýsing á íbúð 305 – 2ja herbergjaÍbúðin er 63,3 fm að stærð og er með sérinngangi af svölum. Þegar komið er inn í forstofu tekur við gott skápapláss. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, með góðum fataskápum. Baðherbergi er með glugga, góðri snyrtiaðstöðu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Alrými er mjög rúmgott og bjart, með opnu eldhúsi. Stofa er einnig björt og rúmgóð. Úr alrými/stofu er útgengt á svalir
Grásteinsmýri 3 Garðabæ, hýsir 21 íbúð. Um að ræða nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð. Á Álftanesi fær fjölskyldan það besta úr tveimur heimum – rólegt og náttúrulegt fjölskylduumhverfi við sjóinn, en samt stutt í borgina, skóla, íþróttir og alla helstu þjónustu.Innréttingar og búnaðurAXIS innréttingar í litnum Cashmere Grey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta. Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Hurðir, lamir og hurðabúnaður frá Agli Árnasyni. Sér geymsla í kjallara og sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla er í inngarði á milli húsa.
Staðsetning og nærumhverfiFrábær staðsetning þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Umhverfið er rólegt og fallegt og aðstaða fyrir fjölskyldufólk er framúrskarandi. Þá eru frábær útivistarsvæði við strandlengjuna. Hestamannafélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru einnig á svæðinu. Aðeins 4 mínútna akstur er frá ljósunum við Actavis.
AthugasemdirKaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem fellur ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupannaStimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar fer samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu er samkvæmt gjaldskrá.
Húsfélag:Ekki hefur verið stofan húsfélag, en væntanlegir kaupendur kaupa til með að stofna það þegar þeir eru fluttir.
Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lgf :845-8958 eða jorunn@haborg.is, Katla Hanna Steed, lgf, s: 822-1661 eða katla@haborg.is og Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða thorunn@haborg.is og Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og kristinhogna@haborg.is.