Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Glæsilegt bjart og fallegt útsýnis heilsárshús í Kjósinni byggt 2023 á eignarlóð við Brekkur 5.
Eignin er sérlega vel skipulögð með mikilli lofthæð og fallegu útsýni.
Skipulag eignar er sérlega gott og er húsið sérlega vel staðsett hvað varðar birtuskilyrði og útsýni. EF ÞÚ ERT AÐ LEITA AÐ HÚSI , Á EIGNARLÓÐ GÓÐRI STAÐSETNINGU, HITAVEITU OG LJÓSLEIÐARI- Húsið stendur á 6.774 fm EIGNARLÓÐ í aðeins um 40 mínútna fjarlægð frá borginni.
- Birt flatarmál er alls 72,8 fm skv. HMS.
- Til viðbótar hefur verið byggt gestahús á steyptum grunni c.a. 15 fm
- Heildar fermetrar húsa á lóðinni eru í raun um 87,8 fm.
Eignin skiptist í forstofa, þrjú herbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofa, stofa og sérstæður geymsluskúr. Geymsluloft er yfir hluta hússins og er húsið á steyptum grunni.Timburhús sem stendur á steyptum grunni.
Forstofa með góðum fataskáp.
3 herbergi og hjónaherbergi með góðum fataskápum. Forstofuherbergið er með lúgu uppá rúmgott geymsluloft.
Baðherbergi flísar á gólfum og flísaþiljur á veggjum, falleg hvít innrétting, upphengt wc og "walk in" sturta með útgengi út á sólpall
Eldhús með hvítriinnréttingu og eyju, með tengi fyrir uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými með aukinni lofthæð útgengi út á sólpall.
Þvottahús gengið í að utan þar sem hitaveitugrindin er stett og rafmagnstafla. Flísar á gólfi, vaskur og hillur.
Samfellt parket á gólfum, Komið ýtdráttarrör fyrir heitum potti og gert ráð fyrir í þvottahúsi.
Sérstæður geymsluskúr c.a. 15 fm á steyptum grunni, kynntur með hitaveitu.
Hér er um að ræða a einstaklega fallegt og sumar / heilsárshús í Kjósinni sem er yndislegur sælureitur á einstaklega fallegum og eftirsóttum stað þar sem fjölbreytt aðstaða er til útivistar í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ. ** SJÓN ER SÖGU RÍKARI ** Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.