** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 233,9 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Skálahlíð 28 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 233,9 m2, þar af er íbúðarhlutinn 191,2 m2 og bílskúr 42,7 m2. Eignin skiptist í hjónaherbergi með fataherbergi, þrjú barnaherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpshol og bílskúr. Seljandi skoðar skipti á minni eign.
Um er að ræða fallegt einbýlishús á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Eingöngu eru einbýlishús í götunni. Hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldufólk. Göngufæri er í alla helstu þjónustu svo sem Lágafellskóla, leikskóla, Lágafellslaug, World Class og GM (Golfklúbb Mosfellsbæjar), Bónus og Krónuna. Lóð er frágengin að hluta og er afgirt með steyptum veggjun að miklu leiti og tyrft að hluta. Heitur pottur í bakgarði. Möl er í bílaplani og meðfram bílskúr. Útihellur á milli stoðveggja og hússins fylgja. Rúmgóður geymsluskúr með rafmagni er á lóð.Smekktu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:Anddyri með fataskápum og flísum á gólfi.
Baðherbergi nr.1 er við anddyrið.Flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu.
Baðherbergi nr.2 er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu með innbyggðum tækjum. Gluggi er á baðherbergi.
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu opnu rými. Í eldhúsi er L-laga innrétting með miklu skápaplássi og eyju. Steinn á borðum. Í innréttungu er ísskápur, frystiskápur, innbyggð uppþvottavél. spanhelluborð, bakaraofn og örbylgjuofn. Rennihurð út í garð.
Sjónvarpshol er rúmgott í miðjurými hússins.
Hjónaherbergið er með fataherbergi. Gott skápapláss.
Barnaherbergin eru
þrjú og eru fataskápar í einu þeirra.
Þvottahúsið er með stórri innréttingu með miklu skápaplássi. Útgengt er út í garð
Bílskúrinn er skráður 42,7 m2.
Gólfefni eru harðparket er frá Egill Árnason og flísar frá Álfaborg.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er 176.700.000 kr.
Verð kr. 174.900.000,-