Miklaborg kynnir: Efri sérhæð í Sigvaldahúsi miðsvæðis í Reykjavík með tveimur aukaíbúðum á frábærum stað við Álfheima. íbúðarhæðin er 4ra herbergja um 120 fm. Stúdíóíbúð í kjallara og önnur í bílskúr, báðar standsettar fyrir nokkrum árum. Möguleiki á góðum leigutekjum.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Íbúðarhæð skráð 120,8 fm: Anddyri og stigapallur með fataskáp. Eldhús og borðstofa í einu rými og inn af borðstofu er stór stofa. Hvít innrétting frá HTH og granít á borðum. Mikið skápapláss og setuborð við innréttinguna. Borðstofa við eldhús og þaðan er útgengt út á svalir. Inn af borðstofu er rúmgóð og björt stofa. Á sér gangi eru 3 svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er stórt með eldri skápum, barnaherbergin eru bæði með nýrri skápum. Einnig er skápur/geymsla á gangi. Baðherbergið er rúmgott og allt flísalagt í hólf og gólf. Stór innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu yfir. Eikarparket er á allri íbúðinni en flísar á baðherbergi.
Stúdíóíbúð í kjallara skráð 28,9 fm: Opið rými með eldhúsinnréttingu og tækjum. Baðherbergi einfalt með sturtuklefa. Gólfefni eru flísar. Sameiginlegur inngangur.
Bílskúr/stúdíóíbúð skráður 29,1 fm: Opið rými með eldhúsi og tækjum. Baðherbergi einfalt með sturtuklefa. Svefnherbergi innst með fataskáp. Þakgluggar. Gólfefni eru flísar.
Sér þvottahús og geymsla skráð 11,5 fm í kjallara. Þvottahús og inn af því geymsla.
Sér geymsla skráð 4,2 fm í kjallara: Undir stigatröppum.
Sameiginlegur garður og gott bílaplan fyrir framan bílskur.
Um er að ræða einstaklega vel staðsetta hæð við Álfheimana þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri við Álfheimakjarnann með verslun, veitingastað, bakaríi ofl, þá eru skólar, leikskólar, íþróttir, verslun, Laugardalurinn og Grasagarðurinn einnig í göngufjarlægð.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 27/03/2013 | 37.450.000 kr. | 35.500.000 kr. | 194.5 m2 | 182.519 kr. | Já |
| 27/03/2013 | 37.450.000 kr. | 35.500.000 kr. | 194.5 m2 | 182.519 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
113 | 95,9 | 69,9 | ||
170 | 500,7 | Tilboð | ||
221 | 182,4 | 138,9 | ||
107 | 83,1 | 76,9 | ||
200 | 59,1 | 62,9 | ||
603 | 155,2 | 144,9 |