LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali kynna fallega og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi og bílskúr við Laufrima 1 í Grafarvogi. Stór, afgirtur timburpallur út frá stofu. Þrjú svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu rými. Fyrir nokkrum árum voru öll gólfefni endurnýjuð ásamt öllum innréttingum, skápum og innihurðum. Baðherbergi hefur einnig verið endurnýjað. Gaflar hússins eru klæddir. Gler í húsinu var endurnýjað eftir þörfum fyrir nokkrum árum. Þak er yfirfarið reglulega.
Falleg eign á besta stað í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Sérinngangur er fyrir aftan húsið.
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi og steini á borðum.
Stofa: Parket á gólfi, útgengi á afgirtan sérafnotareit.
Þrjú svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting með handlaug og speglaskáp, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, innrétting utan um þvottavélar, opnanlegur gluggi.
Bílskúr: 17,8 fm, steypt gólf. Nýlega var bílskurshurð skipt út fyrir inngangshurð og opnanlegt fag. Tengingar fyrir hleðslustöð eru tilbúnar fyrir framan bílskúr.
Sérgeymsla (4,6 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.