Glæsilegt heilsárshús við Víðibrekku 21 í Grímsnesinu.  Glæsilegt útsýni.Sumarbústaðurinn er á 7.730fm. eignarlóð.  Byggður 2008 og er skráður 134,2fm.  Að auki fylgir með bílskúr sem er skráður 40fm.
Árið 2020 var bústaðurinn og pallurinn stækkaður (ekki í fm.), klæddur að utan ásamt því að útbúin var sauna.Stór og fallegur pallur í kringum allt húsið.Neðri hæð:Anddyri með flísum á gólfi og fatahengi
Eldhús er opið inn í stofu með stórri eyju og góðu skápaplássi.  Stór eldavél, tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp.  Harðparket á gólfi.
Stofa: Harðparket á gólfi og útgengt út á nýlega yfirbyggða sólstofu:
Sólstofa: Um 50fm. Flísalögð og hiti í gólfi.  Tvöföld hurð með útgengi út á suðvestur pall með miklu útsýni.
Svefnherbergi 1:  Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.  Rýmist vel hjónarúm þar inni.
Svefnherbergi 2:  Harðparket á gólfi og í dag er koja þar inni með tvöfaldri neðri dýnu.
Baðherbergi 1:  Flísar á gólfi og snyrtilegur sturtuklefi. Innrétting og skápar ásamt upphengdu salerni.
Baðherbergi 2:  Flísar á gólfi, upphengt salerni ásamt "walk-in" sturtu.  Útgengt úr baðherbergi út á pall þar sem heiti potturinn og saunan er.
Þvottahús:  Flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.  Í dag er einnig ísskápur inni í þvottahúsinu.  Útgengt úr þvottahúsi út á pall.
Efri hæð:Svefnherbergisgangur með timburgólfi
Svefnherbergi 1:  Stórt fjölskylduherbergi með timburgólfi, útgengt á svalir úr herbergi. Í dag er svefnpláss og rúm fyrir fimm manneskjur í herberginu.
Svefnherbergi 2:  Timburgólf.  Í dag er hjónarúm ásamt barnarúmi í þessu herbergi.
BílskúrSteypt og lakkað gólf.  Mikil lofthæð.  Í dag er bílskúrinn notaður sem hobby herbergi.  Sambyggt bílskúrnum er annar bílskúr sem notaður er sem geymsla en er með innkeyrsluhurð  Innangengt er á milli bílskúranna. 
Pallur:Stór pallur er í kringum allt húsið ásamt aukapalli til austurs við bílskúrinn.  Nýlegur heitavatnspottur á pallinum.  Við hliðina á heita pottinum er 
glæsileg sauna með útsýni til austurs.
Undanfarin tvö ár hefur eignin öll verið tekin í gegn að innan sem utan og bætt við hann sólstofu, heitum pott og saunu.  Bústaðurinn er nýlega málaður og pallurinn stækkaður.  Glæsilegt útsýni.
Bústaðurinn hefur verið í skammtímaleigu undanfarin misseri með svefnpláss fyrir tólf fullorðna og eru góðar bókanir framundan sem hægt væri að taka yfir.Möguleiki er að allt innbú fylgi bústaðnum.Í dag er bústaðurinn á byggingarstigi 4, en verður afhentur nýjum eigendum á byggingarstigi 7Innhringihlið er að bústaðnum.Fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband við:
Helgafell fasteignasala, sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., Sími 
775 5805  /  runar@helgafellfasteignasala.is