Fasteignaleitin
Skráð 10. nóv. 2023
Deila eign
Deila

Núpahraun 20

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
149.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
602.951 kr./m2
Fasteignamat
10.350.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðbjörg Heimisdóttir
Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali
Byggt 2022
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
F2508900
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  NÚPAHRAUN 20, ÞORLÁKSHÖFN.  NÝTT, GLÆSILEGT 149m2 ENDARAÐHÚS MEÐ 3 SVENHERBERJUM. 
HÚSIÐ AFHENDIST FULLBÚIÐ og er klætt að utan með gráu bárustáli með hvítri timburklæðningu í innskotum og hvítum gluggum og hurðum og svörtu þakstáli.
Loft eru upp tekin í öllu húsinu sem gerir öll rými björt og falleg !
(það athugist að myndir að innan eru úr miðjuraðhúsi sem er spegilmynd þessa húss og jafnframt eru gluggar á gafli í stofu)
** HÆGT ER AÐ DREIFA ÚTBORGUN Á 2-3 ÁR**

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424**


Húsið skiptist svo:
*  Flísalagt anddyri.  
*  3 mjög rúmgóð svefnherbergi.  
*  Eldhús með fallegri innréttingu með eyju og vönduðum heimilistækjum.  Eldhús og stofa eru í opnu rými.
*  Fallega stofu þaðan sem utangengt er í garðinn.  Rennihurð út úr stofu. Garðurinn snýr í suður/vestur.
*  Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, fallegri innréttingu og sturtu úr glerþili.
*  Þvottahús með flísum á gólfi og vinnuborði með skolvask..  Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi.
*  Bílskúr.
*  Góð geymslu í enda bílskúrs. 

*  Sorptunnuskýli á lóð fylgja.
*  Gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla.  Hleðslustöð fylgir ekki.
Hönnuður er Pro-Ark ehf á Selfossi.

** Sjón er sögu ríkari **

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!

Verslun og þjónusta:

Hér má m.a. finna:

VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.

Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina:

Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)

Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)

Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 

Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)

Landsbankinn 

Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.

Jógastúdíó (Jógahornið).

Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna:  

Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 

Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.

Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  

Einnig er hér:

Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)

Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)

O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is








 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2022
43.1 m2
Fasteignanúmer
2407343
Númer hæðar
1
Númer eignar
06
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Húsmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Núpahraun 20, LAUST TIL AFHENDINGAR
Bílskúr
Núpahraun 20, LAUST TIL AFHENDINGAR
815 Þorlákshöfn
148.4 m2
Raðhús
413
606 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina NÚPAHRAUN 20
Bílskúr
Skoða eignina NÚPAHRAUN 20
Núpahraun 20
815 Þorlákshöfn
148.4 m2
Raðhús
413
606 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina NÚPAHRAUN 26
Bílskúr
Skoða eignina NÚPAHRAUN 26
Núpahraun 26
815 Þorlákshöfn
148.4 m2
Raðhús
413
606 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 26
Skoða eignina Núpahraun 26
Núpahraun 26
815 Þorlákshöfn
148.4 m2
Raðhús
54
606 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache