DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 20. nóv. 2021

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
400 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
261.000.000 kr.
Fermetraverð
652.500 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
813201126
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar verandir með glæsilegu útsýni
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR GOLFVILLUR*-*FYRSTA LÍNA - FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stórum kjallara í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og OG FRÁBÆRU ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og þremur baðherbergjum. Stór sér lóð. Lokaður bílskúr fyrir 2-3 bíla.
60 GOLFHRINGIR Á LA FINCA GOLFVELLINUM FYLGIR MEÐ Í VERÐINU.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869,

Nánari lýsing:

Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. 
Svefnherbergi með sér baðherbergi  og auk þess eitt svefnherbergi til viðbótar  og annað baðherbergi. Á efri hæð er stór lúxus hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi og útgengi út á stórar svalir með útsýni yfir golfvöllinn og möguleika á heitum pott.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug. Einstakt útsýni yfir La Finca golfvöllinn og gróið og fallegt umhverfi.
Rúmgóður kjallari (196 fm) undir húsinu, sem býður upp á mikla möguleika, td. fyrir bílageymslu, bíósal, ýmsar tómstundir og vinnu aðstöðu. 
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Speglar og sturtugler fylgir og auk þess home autamation kerfi.

Stærð húss: 203 fm
Stærð kjallara: 197 fm
Stærð veranda 179 fm
Stærð lóðar 462-510 fm.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Fyrsti áfangi er uppseldur. Annar áfangi var að koma í sölu. Aðeins örfá hús í boði.


Verð 1.800.000 Evrur. (265.000.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, bílskúr, útsýni, golf,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
813201126

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgarsíða 37
Opið hús:04. maí kl 16:15-16:45
Skoða eignina Borgarsíða 37
Borgarsíða 37
603 Akureyri
180 m2
Einbýlishús
514
666 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Bragagata 33
Skoða eignina Bragagata 33
Bragagata 33
101 Reykjavík
126.6 m2
Einbýlishús
524
868 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Heinaberg 23
Bílskúr
Skoða eignina Heinaberg 23
Heinaberg 23
815 Þorlákshöfn
224.2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðagerði 56
Skoða eignina Rauðagerði 56
Rauðagerði 56
108 Reykjavík
311.1 m2
Einbýlishús
624
691 þ.kr./m2
214.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin