DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:05. júlí kl 15:00-16:00
Skráð 4. júlí 2026

Gaddstaðir 44

EinbýlishúsSuðurland/Hella-851
226.9 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
550.463 kr./m2
Fasteignamat
99.600.000 kr.
Brunabótamat
120.250.000 kr.
Mynd af Hrafnkell Pálmarsson
Hrafnkell Pálmarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2368635
Landnúmer
226281
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Varmadæla
Inngangur
Margir inngangar
Afar glæsilegt og vandað 6 herbergja einbýlishús á 1,5 hektara lóð í skemmtilega skipulögðu íbúðahverfi rétt austan við Hellu. Svæðið í kring er þekkt sem eitt besta hestamannasvæði landsins og býður deiliskipulagið upp á að byggja skemmu/hesthús, geymslu og gestahús á lóðinni. Einnig er heimilt að vera með gistingu fyrir allt að 10 manns og er hér því einnig frábært tækifæri til að byggja upp ferðaþjónustu.

** 4 svefnherbergi - auðvelt að bæta við fleirum með breytingu á innra skipulagi
** 1,5 hektara lóð - með auknum byggingarheimildum
** Leyfi fyrir minniháttar dýrahaldi og gistingu fyrir allt að 10 manns
** Stór hluti efri hæðar er undir súð og eru því nýtanlegir fermetrar meiri en birt stærð gefur til kynna

Nánari upplýsingar veita:

Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar skv. HMS er 226,9m2 og er lóðin 

Eignin skiptist í anddyri, sfofu/borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og geymslu.

Nánari lýsing
1. hæð:
Anddyri/hol er mjög rúmgott og tengir saman önnur rými á hæðinni og er þaðan stigi upp á aðra hæð. Flotuð gólf.
Eldhús er með fallegri grárri innréttingu með viðarborðplötu, 2 bakaraofnum, eyju með góðu skúffuplássi og helluborði. Flotuð gólf.
Stofa/borðstofa eru í opnu rými með eldhúsinu og gefa stórir gluggar góða birtu inn í rýmið. Gengið er út á stóra viðarverönd sem vísar í suður. Flotuð gólf.
Baðherbergi I er rúmgott með hvítri innréttingu með handlaug, upphengdu salerni og "walk-in" sturtu. Flísar á veggjum og í sturtugólfi og annars flotuð gólf.
Svefnherbergi I er rúmgott (13,7m2) með flotuð gólf. 
Svefnherbergi II er rúmgott (12,8m2) með flotuð gólf.
Þvottahús er mjög rúmgott með óðum hirlsum og plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Inngangur frá bílastæði er inn í þvottahúsið. Flotuð gólf.
Geymsla er á hæðinni, 4,4m2.

2.hæð
Gengið er upp fallegan viðarstiga upp á aðra hæð.
Sjónvarpshol / fjölskyldurými er undir súð og meðfram súðinni er geymslupláss og nýtileg rými og öðru megin sér innréttað leiksvæði fyrir börnin.
Svefnherbergi III er mjög rúmgott (23m2) og bjart með góðu fataherbergi. Bæði góður gluggi á gafli og opnanlegur þakgluggi. Teppi á gólfum.
Svefnherbergi IV er mjög rúmgott (20,6m2) og hefur verið innréttað sem draumaveröld barnsins með 2 lokrekkjum og nægu rými fyrir leik. Auðvelt væri að skipta herberginu upp í 2 herbergi. Teppi á gólfum.
Baðherbergi II er flísalagt í hólf og gólf með lítilli innréttingu með handlaug og upphengdu salerni. Tengi eru fyrir baðkar.

Gaddstaðir 44 er sérlega falleg eign í afar fallegu umhverfi og er hér kjörið tækifæri fyrir fólk að upplifa sveitasælu þó með þægindi þéttbýlis rétt við höndina. Húsið sjálft er hannað með þarfir nútíma fölskyldunnar í huga, stór og opin rými, hlýlegt og praktískt í umgengni.  Við byggingu hússins var horft vel til þátta sem nýta varma og tryggja jafna hitun svo sem með þreföldu gleri í gluggum, einangrun og gólfhita í gólfum neðri hæðar sem skilar sér einnig í lágum rekstrarkostnaði.

Sveitafélagið Rangárþing Ytra veitir alla hefðbundna þjónustu eins og fyrir þéttbýli m.a. sorphirðu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blikastígur 16A
Bílskúr
Skoða eignina Blikastígur 16A
Blikastígur 16A
225 Garðabær
217.6 m2
Einbýlishús
514
758 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 86
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 86
Úugata 86
270 Mosfellsbær
234.5 m2
Einbýlishús
825
678 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Skoða eignina Hellisgata 24
Skoða eignina Hellisgata 24
Hellisgata 24
220 Hafnarfjörður
224.6 m2
Einbýlishús
825
667 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Keldugata 8 raðhús
Keldugata 8 raðhús
210 Garðabær
225.3 m2
Raðhús
7
666 þ.kr./m2
150.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin