Fasteignaleitin
Skráð 11. apríl 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
132 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
81.200.000 kr.
Fermetraverð
615.152 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
104140325
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU*-*FLOTTAR ÍBÚÐIR - ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLL*

Glæsilegar og vel hannaðar nýjar íbúðir á Las Colinas golfsvæðinu, flestar með einstöku útsýni  yfir golfvöllinn og til sjávar. Um er að ræða tvær þriggja hæða blokkir sem snúa í suður á einum besta staðnum á Las Colinas svæðinu. Sér sundlaugargarður með góðri sameiginlegri aðstöðu, sér stæði í bílakjallara og geymsla. 
Rúmgóðar íbúðir,  tvö eða þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu. Góðar svalir með frábæru útsýni. Möguleiki á sér garði eða þakverönd.
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.

Lengi hefur verið beðið eftir íbúðum á þessum stað og þær eiga eftir að seljast hratt.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869,
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is

Lýsing:

Íbúðum á neðstu hæð fylgir sér garður. Íbúðir á miðhæð eru með góðum svölum út frá stofu og íbúðir á efstuhæð, penthouse, eru með stórum svölum og sér þaksvölum. Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar úr flestum íbúðunum.

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Dehesa de Campoamor ströndina, þar sem eigendur eigna á Las Colinas hafa aðgang að einka strandklúbb.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góður kaupauki fylgir með, hafið samband og kynnið ykkur málið.

Margir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði, á miðhæð með stórum svölum og efstu hæð með svölum og stórum sér þaksvölum.

Gengi 1 Evra=145ISK.
Íbúðir með 3 svefn. + 2 baðh. Verð frá 560.000 evrur (ISK 81.200.000ISK) + kostn. við kaupin.

Einnig eru á sama stað í boði íbúðir með 2 svefnh. + 2 baðh. 
Verð frá 390.000 Evrum (ISK 56.500.000) + kostn. við kaupin

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
104140325
Fasteignanúmer
104140325

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
108 m2
Einbýlishús
423
764 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Penthouse Sumareignir
Penthouse Sumareignir
Spánn - Costa Blanca
128 m2
Fjölbýlishús
534
645 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
135 m2
Einbýlishús
423
596 þ.kr./m2
80.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
134 m2
Einbýlishús
423
594 þ.kr./m2
79.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin