DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2026

Öngulsstaðir 1B

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-605
173.9 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
689.477 kr./m2
Fasteignamat
43.850.000 kr.
Brunabótamat
72.300.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1957
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2160065
Landnúmer
196433
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott svo vitað sé
Raflagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Frárennslislagnir
Gott svo vitað sé
Gluggar / Gler
Talið í lagi.
Þak
Talið í lagi, ekki skoðað.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Kasa fasteignir 461-2010.

Öngulsstaðir 1, Eyjarfjarðarsveit

Rúmgóð og vel skipulögð eign með einstöku útsýni, sér afgirtum garði og stóru útihúsi – aðeins um 10 km austan Akureyrar.

Um er að ræða fallega og fjölskylduvæna íbúð í þríbýlishúsi ásamt hluta af jarðhæð, samtals 173,9 fm, á einstaklega fallegum stað um 10 km austan Akureyrar.
Eignin nýtur friðsællar sveitarstemningar en er jafnframt í stuttri akstursfjarlægð frá allri þjónustu bæjarins.
Samkvæmt eignaskiptasamningi er eignin sjálfstæð, þar sem ekkert er sameiginlegt með öðrum íbúðum hússins.
Sér afgirtur garður fylgir eigninni og frá húsinu er stórbrotið og óhindrað útsýni yfir nærliggjandi sveit og fjallahringinn.
  • Íbúðin er björt og vel skipulögð. Á aðalhæð eru forstofa, hol, rúmgóð stofa, borðstofa, eldhús með búri, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á jarðhæð eru rúmgott herbergi, hol, þvottahús, geymsla og sér bakdyrainngangur sem eykur notagildi eignarinnar.
Með eigninni fylgir glæsilegt 248,6 fm útihús sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Húsið skiptist í 134,1 fm hesthús, 101,0 fm hlöðu og 13,5 fm geymslu. Hesthúsið er útbúið stíum fyrir allt að 16 hesta, en er ekki í notkun sem hesthús í dag.
Með litlum tilkostnaði mætti breyta því í afar gott rými fyrir fjölbreytta tómstundaiðju, verkstæði, geymslu eða aðra starfsemi eftir þörfum nýrra eigenda.
Hitaveita er í útihúsinu og þar hafa verið gerðar ýmsar endurbætur á síðustu árum, meðal annars endurnýjun glugga og glers, vatnslagna og hurða.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta sveitalífs og kyrrðar án þess að vera langt frá bænum. Eignin sameinar rúmgott íbúðarhúsnæði, sjálfstæða lóð, stórkostlegt útsýni og fjölbreytta möguleika í stóru útihúsi sem býður upp á margvíslega framtíðarnýtingu.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Maltakur 7
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Maltakur 7
Maltakur 7
210 Garðabær
158 m2
Fjölbýlishús
322
873 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 5
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Búðagerði 5
Búðagerði 5
108 Reykjavík
163.9 m2
Fjölbýlishús
435
731 þ.kr./m2
119.800.000 kr.
Skoða eignina Hrafnagilsstræti 28 e.h.
Opið hús:11. ágúst kl 17:15-17:45
Hrafnagilsstræti 28 e.h.
600 Akureyri
113.6 m2
Fjölbýlishús
412
659 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4, Þakíbúð
Bílastæði
55 ára og eldri
Efsta hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:09. ágúst kl 16:00-16:30
Engjaland 4, Þakíbúð
800 Selfoss
168.6 m2
Fjölbýlishús
322
889 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin