BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EDENMÖRK 3 ÍBÚÐ 101, 810 Hveragerði. Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í litlu fjölbýlishúsi í Edenbyggð miðsvæðis í Hveragerði.
Smellið hér fyrir staðsetningu. ÍBÚÐ 101 NEÐRI HÆÐ, íbúðin er 62.7 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með einföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á hellulagða verönd til suðurs úr alrými.
Eldhús er með AEG ofni í vinnuhæð, spanhelluborði og viftu sem fellur undir efri skáp.
Stálvaskur og Grohe blöndunartæki, innbyggð AEG uppþvottavél, sérsmíðuð eldhúsinnrétting,
Svefnherbergin eru tvö, fjórfaldur fataskápur er í hjónaherbergi, einfaldur fataskápur er í minna herbergi.
Baðherbergi með vaskinnréttingu, speglaskápur, upphengt salerni og sturta, sturtuhorn er flísalagt, gluggi, gólfhiti er á baðherbergi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla er staðsett inn af holi/alrými, rennihurð.
Gólfefni: Vínylparket er á gólfi í alrýmis og svefnherbergja. Flísar eru á baðherbergi og anddyri.
T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Edenmörk 3 er sex íbúða staðsteypt tveggja hæða hús. Allir útveggir ásamt veggjum á milli íbúða eru staðsteyptir. Húsið er klætt að utan með málm- og timburklæðningu.
Sérinngangur er í íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli, opið hjólaskýli er á lóð.
Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota.
Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-0906.Stærð: Íbúð 62,7 m².
Brunabótamat: 37.550.000 kr.
Fasteignamat: 42.150.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2025: 45.400.000.-
Byggingarár: 2021
Byggingarefni: Steypa.