Til leigu 1.030 m² verslunar- og þjónustuhúsnæði á tveimur hæðum við Askalind 2a í Kópavogi. Laust strax.
Húsnæðið skiptist í 600 m² opið verslunarrými á jarðhæð og 430 m² milliloft sem einnig getur nýst sem verslun eða skrifstofur.
Á jarðhæð er einnig til staðar fundarherbergi, kaffistofa, snyrting og ein geymsla. Við kaffistofu er útgengt út á norður svalir.
Húsið er vel staðsett. Stórir sýningargluggar. Næg bílastæði fyrir framan húsnæðið.
VSK-húsnæði.
Hafðu samband við Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.