DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 12. maí 2026

Vindheimar 0

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Kjalarnes-162
180 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.700.000 kr.
Fermetraverð
720.556 kr./m2
Fasteignamat
75.800.000 kr.
Brunabótamat
85.800.000 kr.
Mynd af Steingrímur Þór Ágústsson
Steingrímur Þór Ágústsson
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2085451
Landnúmer
125751
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Húsaskjól og Steingrímur Þór Ágústsson löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Vindheima: Fallegt 179,9 fm einbýlishús á 1,8 hektara eignarlóð.
Um er að ræða einstaka jörð (lögbýli) þar sem búið er að planta yfir 500 trjám, sem gefur eigninni mikinn karakter og skjól. Húsið er vel skipulagt með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Alrýmið er sérlega bjart og opið en það skiptist í stofu, eldhús og borðstofu með mikla lofthæð. Inn af forstofu er rúmgott þvottahús og geymsla, auk þess sem stórt geymslurými er í risi sem telst ekki með í fermetratölu.
Gólfsíðir gluggar í stofu hleypa inn mikilli birtu og útgengt er á sólríkan pall með heitum potti. Á lóðinni er einnig rúmgóð saunatunna og stórt eldstæði. Staðsetningin er fjölskylduvæn og hjólaörugg þar sem undirgöng eru undir þjóðveginn sem tryggja örugga leið í skóla og félagsheimili án þess að þurfa að fara yfir götu.

Anddyri og þvottahús:
Gengið er inn í rúmgott og flísalagt anddyri. Á vinstri hönd er mjög veglegt þvottahús/geymsla, flísalagt með góðri vinnuaðstöðu. Tæki eru hækkuð í rétta vinnuhæð.
Alrými (eldhús, borðstofa og stofa):
Glæsilegt og opið alrými með mikilli lofthæð og parketlögðu gólfi. Stórir gluggar einkenna rýmið og hleypa náttúrulegri birtu inn.
Eldhúsið er flísalagt og hannað með gott vinnuflæði í huga.
Borðstofan liggur við eldhúsið í björtu rými með fallegt útsýni.
Stofan er miðsvæðis í húsinu með gólfsíðum gluggum meðfram öllum suðurveggnum. Úr alrýminu er útgengt á stóran og skjólsælan pall.
Svefnherbergi (4):
í húsinu eru fjögur parketlögð svefnherbergi:
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataskápum sem ná alveg upp í loft.
Herbergi 2: Rúmgott með tveimur gluggum og stórum fataskáp.
Herbergi 3: Nýtist í dag sem barnaherbergi, með góðum hirslum.
Herbergi 4: Bjart herbergi sem í dag er nýtt sem skrifstofa.
Baðherbergi (2):
Húsið býður upp á tvö baðherbergi. Baðherbergi 1 (gestasalerni) var nýlega endurnýjað. Baðherbergi 2 er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og stór vaskinnrétting með góðu borðplássi.
Ris og geymsla:
Yfir miðju húsinu er bjart og sólríkt ris með þakgluggum. Innan við vegg í risinu er mjög löng og góð geymsla.
Garður og útivist:
Úr stofunni er gengið út á stóran sólpall með heitum potti. Á lóðinni er einnig rúmgóð saunatunna sem hefur verið steypt niður og því einstaklega vindþolin.
Bílastæði eru rúmgóð og nóg pláss fyrir marga bíla.
Húsið og viðhald:
Húsinu hefur verið vel við haldið í gengum árin. Búið er að endurnýja dren og gólfplata hússins er upphækkuð. Þakið er traust og vel fest en gluggar í risi eru komnir á tíma og þarfnast endurnýjunar.
Staðsetning og þjónusta:
Vindheimar liggja á góðum stað þar sem úrkoma er minni vegna fjallsins. Svæðið er skipulagt þannig að þétting byggðar er takmörkuð vegna ofanflóðavarna, sem tryggir næði og opið útsýni. Varnir hafa verið byggðar til að tryggja öryggi íbúa.
Skólaakstur: Skólabíll sækir börn alveg upp að húsi.
Vetrarþjónusta: Snjómokstur er reglulegur upp að húsi sem tryggir gott aðgengi allt árið.
Samfélag: Stutt er í skóla og félagsheimili í gegnum undirgöng, en þar er hægt að leigja aðstöðu fyrir veislur og mannamót.

Hér er hægt að nálgast teikningar af eign 

Upplýsingar veitir: Steingrímur Þór Ágústsson, löggiltur fasteignasali í síma 869-2831 eða steingrimur@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (66)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Svölutjörn 63
106,9 aug.jpg
Skoða eignina Svölutjörn 63
Svölutjörn 63
260 Reykjanesbær
204.4 m2
Einbýlishús
514
523 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 2 íb 207
Bílastæði
Grásteinsmýri 2 íb 207
225 Garðabær
144.8 m2
Fjölbýlishús
524
870 þ.kr./m2
126.000.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb313
Bílastæði
Vetrarbraut 2-4 íb313
210 Garðabær
126.3 m2
Fjölbýlishús
413
1147 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb209
Bílastæði
Vetrarbraut 2-4 íb209
210 Garðabær
127.8 m2
Fjölbýlishús
413
1016 þ.kr./m2
129.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin