Fasteignaleitin
Skráð 12. mars 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Torrevieja

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
355 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
86.200.000 kr.
Fermetraverð
242.817 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
103050225
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á FRÁBÆRUM STAÐ* -*BÍLSKÚR OG STÓR GEYMSLA*
ÞÍN DRAUMAEIGN Á SPÁNI, ÞAR SEM SÓLIN SKÍN Á ALLA

Falleg, björt og vel hönnuð einbýlishús á einni hæð með lokuðum einkagarði og einkasundlaug í TORREVIEJA , um 30 mín akstur suður af Alicante flugvelli. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Flott hönnun. Góð verönd  framan við húsið. Lokaður einkagarður með einkasundlaug. Góðar þaksvalir með glæsilegu rými. Örstutt frá Quiron Salud einkaspítalanum.
Frábær staðsetning í göngufæri við verslanir og veitingastaði. 

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali,  GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is


Nánari lýsing:
Stofa, borðstofa og  eldhús í rúmgóðu opnu rými. Gott útgengi út á verönd og garðinn. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta.
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Þakverönd yfir öllu húsinu.
Góður sér garður með einkasundlaug, góðri grillaðstöðu og sólarverönd.
Bílastæði í lokuðum kjallara ásamt stórri geymslu/tómstundarými.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca.6 mín akstur er niður á ströndina í Torrevieja og ca. 12 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega hannaðar lúxuseignir á frábæru verði og vel staðsettar í Torrevieja. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill njóta lífsins.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK
595.000 evrur (ISK. 86.200.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Húsið er 142 fm
Verönd 29 fm
Þakverönd 116 fm.
Geymsla í kjallara 36 fm
Bílskúr í kjallara 32 fm
Samtals 355 fm.

Húsin eru til afhendingar í desmeber 2025.
AÐEINS 5 HÚS Í BOÐI.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila með áratuga reynslu. Hafið samband og bókið einkaviðtal.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílskúr, þakverönd, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103050225

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
342 m2
Parhús
423
254 þ.kr./m2
86.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
343 m2
Einbýlishús
423
262 þ.kr./m2
89.700.000 kr.
Skoða eignina Norðurgata 21
Bílskúr
Skoða eignina Norðurgata 21
Norðurgata 21
245 Sandgerði
343.1 m2
Fjölbýlishús
925
253 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin