Opið hús:08. feb. kl 13:00-13:30
Skráð 4. feb. 2026

Nónhæð 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
99.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
800.601 kr./m2
Fasteignamat
75.050.000 kr.
Brunabótamat
48.500.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1992
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2072020
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir Nónhæð 4 í Garðabæ, virkilega fallega 4ra herbergja útsýnisíbúð á 3ju hæð með suðvestur svölum og glæsilegu útsýni.
Falleg og mjög vel skipulögð íbúð í litlu og góðu fjölbýli. Íbúðin er á 3. hæð, aðeins einn og hálfur stigi frá inngangi, sem gerir aðgengi þægilegt.
Frábær fjölskylduíbúð á þessum vinsæla stað í Garðabæ.  Birt stærð 99,8 fm.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing;
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og parketi á gólfi. Inn af forstofu tekur við hol/alrými sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús: Opið inn af borðstofu með hvítri innréttingu og góðu vinnuplássi. 
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með parketi á gólfi og útgengi á skjólgóðar suðvestur svalir.  Dásamlegt útsýni.
Svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi. Tvö barnaherbergi og hjónaherbergi með góðum fataskápum. Parket er á gólfum.  Möguleiki er á að bæta við fjórða svefnherberginu á kostnað stofu.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt með góðu skápaplássi og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús/geymsla: Inn af eldhúsi, flísalagt gólf, innrétting og skolvaskur.
Sameign er snyrtileg. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk sér geymsluskáps.

Ástand og viðhald; Gólfefni í íbúðinni eru farin að láta á sjá vegna slits.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald að utan og eru engar fyrirhugaðar framkvæmdir.
Nýlega hefur verið farið í múrviðgerðir og húsið málað.
Þak háþrýstiþvegið, grunnað og málað sumarið 2024 ásamt því að skipt var um þakrennur

Staðsetning er afar fjölskylduvæn og stutt í stofnbrautir. Í næsta nágrenni eru leik-, grunn- og framhaldsskólar, fjölbreytt verslun og þjónusta, ásamt íþróttasvæðum.
Stutt er í íþróttasvæði Stjörnunnar í Mýrinni með öflugu íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa. Þá er gott aðgengi að golfvöllum, útivistarsvæðum og annarri þjónustu bæjarins.

Falleg, rúmgóð og vel staðsett fjölskylduíbúð með góðu skipulagi, miklum möguleikum og frábæru útsýni!
Eign sem vert er að skoða.


Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/06/201837.100.000 kr.45.600.000 kr.99.8 m2456.913 kr.
20/02/200720.070.000 kr.24.900.000 kr.102.3 m2243.401 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langamýri 28
Bílskúr
Skoða eignina Langamýri 28
Langamýri 28
210 Garðabær
108.7 m2
Fjölbýlishús
313
717 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbrú 5 íb 307
Bílastæði
Opið hús:08. feb. kl 16:00-16:30
Norðurbrú 5 íb 307
210 Garðabær
79.9 m2
Fjölbýlishús
211
1000 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 5
Opið hús:07. feb. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Mosagata 5
Mosagata 5
210 Garðabær
90.3 m2
Fjölbýlishús
32
885 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
93.4 m2
Fjölbýlishús
312
855 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin