SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *SKEMMTILEGT ENDURNÝJAÐ EINBÝLISHÚS MEÐ SÓLRÍKUM SUÐURGARÐI* *SJÁVARÚTSÝNI* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG GOLF*Falleg endurnýjuð eign sem snýr í suður. Þrjú svefnherbergi, eitt baðherbergi og gestasnyrting. Eldhús og stofa í opnu rými. Sólríkur suðurgarður og bílastæði er innan lóðar. Góðar svalir á annarri hæð og útsýni til sjávar. Eignin er með loftkælingu/hitun. Eigninni fylgir einnig aðgangur að stórum sameiginlegum sundlaugargarði. Rólegt hverfi og gróið umhverfi.
Allar upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869Nánari lýsing:Falleg og vel skipulögð, mikið endurnýjuð eign á góðri endalóð sem snýr í suður. Gengið er inn í stofu og eldhús í opnu rými. Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri hvítri, háglans innréttingu. Á neðri hæðinni er herbergi sem nýtt er sem geymsla, en hægt að breyta í svefnherbergi. Á hæðinni er einnig gestasnyrting. Garðurinn er sólríkur og bílastæði er innan lóðar. Næg bílastæði er einnig að finna við götu.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og gott baðherbergi með sturtu. Útgengt er úr öðru svefnherberginu á góðar svalir með útsýni til sjávar. Eignin er með loftkælingu/hitun. Eigninni fylgir einnig aðgangur að stórum sameiginlegum sundlaugargarði.
Rólegt hverfi og gróið umhverfi. Göngufæri í fjölda veitingastaða og verslana., s.s. í verslunarkjörnunum Villamartin Plaza og La Fuente.
Hér er hægt að gera góð kaup í þessari eign á eftirsóttum stað í Villamartin.
Verð 218.000 evrur eða 31.600.000 ISK (gengi miðast við 1EUR=145ISK)Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í verslanir, veitingastaði og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlega einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Í göngufæri við minigolf og padel velli. Ca. 5 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við aðstoðum við fjármögnun fyrir allt að 75% af kaupverði eignar á góðum kjörum frá spænskum bönkum.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: endalóð, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, svalir, golf,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, La Zenia, Blue Lagoon, El Galan,