DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 30. okt. 2026

Grandavegur 40

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
77.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
1.065.891 kr./m2
Brunabótamat
42.400.000 kr.
Byggt 1915
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20247421
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: lítið einbýli að Grandavegi 40, 107 Reykjavík. Þetta hús heitir Steinabær.

* Nýlega endurnýjuð eldhúsinnrétting
* Húsið er bakhús á mjög rólegum stað
* Eignarlóð
* Gólfflötur er aðeins stærri en birt stærð segir fyrir um


Nánari lýsing:
Inngangur inn í lítla forstofu, sem síðan opnast inn í bjartan sólskála.
Eldhús: með rúmgóðri U-laga innréttingu og borðkrók. Tengt fyrir uppþvottavél. Innréttingin er frá Innlit og er 5 ára gömul að sögn seljanda. Stein borðplata frá Rein.
Gólfefni á eldhúsi og sólskála er korkparket. Gólfhiti.
Gengið er 3 tröppur til að fara upp á bað og svefnherbergi.
Svefnherbergi: er bjart með fataskáp.
Baðherbergi: klósett, handlaug & sturtuklefi ásamt opnanlegum glugga. Dúkur á gólfi og veggfóður á einum vegg.
Þvottahús: lítið þvottahús inn af hjónaherbergi. Þar er eins dúkur á gólfi og á baðherbergi.
Gengið er nokkrar tröppur frá eldhúsi niður til að fara í stofu. Efst í stiganum hefur skápum verið komið fyrir haganlega (sýnt á teikningu).
Stofa: gluggar sitt hvorum megin í hnaus þykkum hlöðnum veggjunum. Málað gólf. Skápur á veggnum sem snýr baki við eldhúsi.
Gluggarnir setja svip sinn á húsið. Þetta eru fallegir gamaldags krossgluggar með fögum.
Frávik frá teikningu: Þvottahús hefur verið notað af núverandi eigendum sem barnaherbergi. (Auðvelt að breyta til baka). Eldhúsið hefur verið flutt frá norðurhlið til suðurhliðar. Núverandi eigendur nota kjallara sem geymslu og þvottahús, en áður hafði þetta yfirleitt verið notað sem stofa. Inntök lagna eru ekki sýnd á réttum stöðum.

Eignin er skráð þannig hjá HMS: einbýli birt stærð er 77,4 fm. Gólfflötur (brutto stærð) er skráð 81,1 fm. Húsið er sagt byggt 1915. Lóðin er eignarlóð. 

Á vef Minjastofnunar kemur fram: "Húsið er eini steinbærinn sem enn stendur á Bráðræðisholti og einn af fáum slíkum sem varðveittir eru í Reykjavík. Steinbær. Sérreykvísk húsagerð."
Húsakönnun Minjastofnunar #24 - sjá bls 23.   

Á teikningu fyrir húsið kemur fram: "Byggingarlýsing, skv. upplýsingum frá Árbæjarsafni: Elsti huti hússins er byggður úr hlöðnu grjóti árið 1896. *Inngönguskúr, sem er úr timbri, er talinn byggður 1913. Húsið var klætt að utan með bárujárni fyrir árið 1924. Bárujárnsklæðningar utan á húsinu voru endurnýjaðar 1991 og byggð sólstofa við húsið."

Húsið er friðað af mennta- og menningarmálaráðherra 13. ágúst 2012, með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðunin nær til ytra byrðis hússins.
Friðun Grandavegar 40  Við bendum á Húsafriðunarsjóð, sem hefur það hlutverk að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja. Sjóðurinn veitir styrki til viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum.

Stutt í þjónustu, verslanir, skóla, sundlaug og KR völlinn.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Bæjarfasteignir ehf
www.fasteignasalan.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrargata 26
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
66 m2
Fjölbýlishús
211
1041 þ.kr./m2
68.700.000 kr.
Skoða eignina Ægisgata 5
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Ægisgata 5
Ægisgata 5
101 Reykjavík
81,9 m2
Fjölbýlishús
312
1211 þ.kr./m2
99.200.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 23 (302)
Tryggvagata 23 (302)
101 Reykjavík
80,8 m2
Fjölbýlishús
311
1100 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjustígur 11
Á einni hæð
Smiðjustígur 11
845 Flúðir
68,6 m2
Raðhús
312
800 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin