DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:27. júlí kl 18:00-18:30
Skráð 22. júlí 2026

Holtsvegur 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
128.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
740.250 kr./m2
Brunabótamat
91.150.000 kr.
Byggt 2017
2. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23579711
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega fjögurra herbergja 128,2 m2 íbúð á annari hæð í lyftuhúsi við Holtsveg 12 í Urriðaholti.  Úr stofu er ágætt útsýni þar sem sést út á sundin.  Íbúðin er 118,5 m2  ásamt  9,7 m2 geymslu . Eignin skiptist í forstofu, eldhús opið inn í stofu,  hjónaherbergi, tvö barnaherbergi , baðherbergi og geymslu. Allar innréttingar eru hannaðar af innanhússhönnuðunum Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnadóttur.

-  Tvennar svalir – til suð-vesturs og austurs
-   Fataherbergi innaf hjónaherbergi
-   Þrjú rúmgóð svefnherbergi
-   Gólfsíðir gluggar í stofu


Nánari lýsing eignar 
Forstofa er opin með parketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Eldhúsið er opið inn í stofu  með dökkri innréttingu, stór eyja með span helluborði og viftuháf yfir, ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur með frysti og innbyggðri uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi, útgengið út á góðar suðvestur svalir með tréflísum á gólfi.
Borðstofa með parketi á gólfi, útgengið út á austur svalir með tréflísum á gólfi
Hjónaherbergi með parketi á gólfi ásamt fataherbergi með rennihurð.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, walk-in sturta , opnanlegur gluggi, góð innrétting með neðri skápum og spegli fyrir ofan, innrétting undir þvottavél og þurrkara.
Geymsla með máluðu gólfi og hillum

Sameiginleg hjólageymsla, rúmgóð, máluð gólf og útgengi á lóð. Aðkoman að húsinu er mjög góð með fjölda bílstæða og rafhleðslustaurum. Fallegur sameiginlegur garður. Hiti í stéttum og við aðgengi að hjólageymslu. Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
 
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög fallegum útsýnisstað neðst í Urriðaholtinu, þaðan sem stutt er í verslanir, veitingastaði, skóla, þjónustu og fallegt útivistarsvæði.
 
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtagerði 20
Bílskúr
Opið hús:26. júlí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Holtagerði 20
Holtagerði 20
200 Kópavogur
143.1 m2
Hæð
514
782 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 9
Opið hús:26. júlí kl 15:30-15:45
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
413
928 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb101
Eskiás 10 íb101
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
43
942 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb309
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:23. júlí kl 12:15-12:45
Vetrarbraut 2-4 íb309
210 Garðabær
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
1124 þ.kr./m2
134.229.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin