DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:15. sept. kl 17:30-18:00
Skráð 10. sept. 2026

Þorrasalir 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
125.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
897.456 kr./m2
Fasteignamat
93.750.000 kr.
Brunabótamat
74.460.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Byggt 2015
Jarðhæð af 6
Garður
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2329424
Landnúmer
207977
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Að sögn seljanda í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Að sögn seljanda í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Virkilega falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð með sérafnotareit og með sérinngangi á jarðhæð í lyftuhúsi í Salahverfi í Kópavogi. Íbúðin er með afgirtri verönd og sauna á sérafnotareit til suðvesturs með fallegu útsýni suðvesturs yfir golfvöll GKG, upp í Heiðmörk, að Vífilsstöðum og að Reykjanesinu. Sér bílastæði í bílageymslu þar sem búið er að leggja fyrir hleðslustöð. Sturta og baðkar á baðherbergi. Eignin getur verið laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 125,8 fm. og þar af er geymsla 6,4 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. 


Nánari lýsing eignar
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. 
Gangur/hol með parketi á gólfi.
Eldhús er opið við stofu, falleg innrétting með nýjum flísum á milli skápa, gottt borðpláss, span helluborð, ofn, gufugleypir, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur og gluggi til suðvesturs og suðausturs.
Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs. Rúmar vel borðstofuborð. Parket á gólfi. Útgengt er út á stóra viðarverönd til suðvesturs.
Hjónaherbergi rúmgott, með góðum fataskápum sem ná upp í loft og glugga til norðurs og austurs. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi II með góðum fataskápum sem ná upp í loft og glugga til austurs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III með góðum fataskápum sem ná upp í loft og glugga til norðurs. Parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtutækjum, flísalögð sturta með glerhurðum, góð innrétting við vask, upphengt salerni og gluggi. Flísar á veggjum og gólfi. 
Þvottaherbergi með vélum í vinnuhæð, gott skápapláss, vaskur og flísar á gólfi. 
Viðarverönd er rúmgóð og afgirt, með sauna og afar fallegum útsýni suðvesturs yfir golfvöll GKG, upp í Heiðmörk, að Vífilsstöðum og að Reykjanesinu. 
Geymsla íbúðar er staðsett á jarðhæð innan hjóla- og vagnageymslu. Málað gólf, rafmagnstengill og loftun.
Bílastæði íbúðar í snyrtilegri bílageymsla með snjóbræðslu í rampi. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð við hvert stæði.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er rúmgóð með máluðu gólfi, glugga til suðvesturs og útgengi á baklóð.

Húsið að utan var málað að utan sumarið 2026.
Lóðin er frágengin, vel hirt og tyrfðri flöt.

Um er að ræða afar fallega og vel skipulagða eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Salahverfi í Kópavogi. Golfvöllur GKG í næsta nágrenni. Stutt í alla verslun og þjónustu, göngu- og hjólaleiðir. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/04/202262.750.000 kr.88.000.000 kr.125.8 m2699.523 kr.
02/11/201849.350.000 kr.58.000.000 kr.125.8 m2461.049 kr.
10/02/201641.300.000 kr.43.000.000 kr.125.8 m2341.812 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2015
Fasteignanúmer
2329424
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.360.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Opið hús:13. sept. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
117.1 m2
Fjölbýlishús
32
973 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb212
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:13. sept. kl 14:00-14:30
Vetrarbraut 2-4 íb212
210 Garðabær
119.5 m2
Fjölbýlishús
312
962 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 9
Opið hús:10. sept. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
413
773 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Ársalir 3
Skoða eignina Ársalir 3
Ársalir 3
201 Kópavogur
123.5 m2
Fjölbýlishús
312
720 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin