DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 18. apríl 2026

Lyngbakki 5

EinbýlishúsAusturland/Neskaupstaður-740
135.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.300.000 kr.
Fermetraverð
481.919 kr./m2
Fasteignamat
48.250.000 kr.
Brunabótamat
67.950.000 kr.
Mynd af Elín Káradóttir
Elín Káradóttir
Byggt 1980
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2169272
Landnúmer
155535
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt, kopar lagnir
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt - ekki vitað
Gluggar / Gler
Upprunalegt, nýir gluggar fylgja með
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd með skjólvegg
Lóð
0
Upphitun
Rafmagnskynding/ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
ATH ekki tæmandi talning: Sprunga er í rúðu í anddyri. Mishæð er í gólfi á milli rýma í anddyri og baðherbergi. Víða vantar gólflista.   
Búið er að færa hluta af einangrun upp í þak í bílskúr. Kominn tími á viðhald á timburverönd. Vantar að klára frágang í kringum útidyrahurð á þvottahúsi. 
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LYNGBAKKI 5, 740 Neskaupstað.
Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr innst við lítin botnlanga,
stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús, byggt árið 1980, eignin skiptist í íbúð 104 m² og  bílskúr 31.5 m², samtals 135.5 m² samkvæmt  skráningu HMS.
Skipulag: Anddyri, gangur, stofa og borðstofa, eldhús, fjögur herbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla. Bílskúr

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: 
Anddyri, flísar á gólfi, gólfhiti (stýring við gólf), tvöfaldur fataskápur, rafmagnstafla.  
Gangur, liggur innan við anddyri að öðrum rýmum eignarinnar, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi, vegghengdur skápur getur fylgt. 
Eldhús er opið við borðstofu, korkflísar á gólfi, U-laga innrétting, helluborð og ofn, háfur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, (uppþvottavél getur fylgt). Innangengt er í þvottahús frá eldhúsi. 
Herbergi I, hjónaherbergi, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi. 
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi. 
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi IV, einfaldur fataskápur, parket á gólfi. 
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti, stýring við gólf, vaskinnrétting, salerni, sturtuklefi, gluggi.  
Þvottahús/geymsla, flísar, þrefaldur fataskápur, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, útgengt er úr þvottahúsi. Hiti er í gólfi í þvottahúsi, stýring við gólf. Lúga upp á loft, ekki fellistigi.
Bílskúr, ómeðhöndlað gólf, bílskúrshurð með mótor. Vaskur, kalt vatn, heitavatnslögn er til staðar að vaski. 
Geymsluloft yfir íbúð, kalt þak, einangrað loft í bílskúr. 
Ticino rofar og tenglar að mestu. 

LYNGBAKKI 5 er timburhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið er klætt að utan með liggjandi málaðri timburklæðningu (málað 2022). Bárujárn á þaki, þak var yfirfarið og málað 2025. Timburhurðar, nýir plastgluggar komnir í alla glugga, nema í bílskúrnum. Hellulagt bílaplan er framan við bílskúr, hellulögð stétt liggur að inngangi.
Lóð er gróin, timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið til suðurs og meðfram megninu af vesturhlið hússins.    
Lóð er 655.0 m² að stærð samkvæmt fasteignayfrliti HMS: Lóðin er leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 30.09.1982 skjal nr. 428-N-000454/1982.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9272. Lyngbakki 5, Fjarðabyggð.

Stærð: Íbúð 104 m². Bílskúr 31.5 m² Samtals 135.5 m².
Brunabótamat: 66.050.000kr.
Fasteignamat: 48.250.000 kr. 
Byggingarár: 1980.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
Rými 01.0101 Íbúð á hæð 104 Brúttó m².
Rými 01.0102 Bílskúr 31.5 Brúttó m²​​​​​​.
Landeignanúmer:155535. Íbúðarhúsalóð 655 m².
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/11/201216.600.000 kr.20.300.000 kr.135.5 m2149.815 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Staðarborg 26 B
Hleðslustöð
Skoða eignina Staðarborg 26 B
Staðarborg 26 B
190 Vogar
129,2 m2
Raðhús
514
660 þ.kr./m2
85.300.000 kr.
Skoða eignina Staðarborg 22 D
Hleðslustöð
Skoða eignina Staðarborg 22 D
Staðarborg 22 D
190 Vogar
131,1 m2
Raðhús
514
661 þ.kr./m2
86.600.000 kr.
Skoða eignina Háteigsvegur 12
Bílastæði
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Háteigsvegur 12
Háteigsvegur 12
105 Reykjavík
156,5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
614
927 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 69
Bílskúr
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Rauðalækur 69
Rauðalækur 69
105 Reykjavík
148,4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
808 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin