Miklaborg kynnir: Snyrtilega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á annari hæð að Sléttahrauni 25 í Hafnarfirði. 2 svefnherbergi. Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnúýjuð. Nýlegt harðparket er á íbúð. Íbúðin er skráð 84,4 m2 og þar af er 6,6 m2 sér geymsla í kjallara. Þvottahús á hæðinni
Leitið upplýsinga hjá Friðrik í s. 616 1313
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með góðun fataskápum og gengið áfram inn í hol. Á vinstri hönd er nýlega uppgert eldhús með fallegum hvítum innréttingum. Á hægri hönd er svefnherbergi og nýlega uppgert baðherbergi með stórum walk-in sturtuklefa og upphengdu salerni. Stórt hjónaherbergi með góðum skápum þar við hlið. Stofa er stór með gluggum mót suðri og vestri og útgengi er úr stofu á sólríkar svalir.
Gólfefni: Nýlegt harðparket er á allri íbúðinni en flísar á baði.
Sér geymsla er í kjallara ásamt hjólageymslu. Þottahús er í sameign,á hæðinni. Bílskúrsréttur fylgir eigninni
Húsið hefur fengið gott viðhald og var málað sííðast fyrir ca. 5 árum. Stigagangur málaður og teppalagður á árunum 2023 - 2024. Íbúðin sjálf var mjög mikið endurnýjuð 2021. Skipt var um flest öll gler í stofu og opnanleg fög í hjóna- og baðherbergi. Útidyrahurð og svalahurðir endurnýjaðar, Skipt um eldhúsinnréttingu ásamt tækjum og baðherbergi endurnýjað. Raflagnir endurnýjaðar, ásamt tenglum og ljósum, Ofnakranar og miðstöðvarofn í stofu endurnýjaðir. Myrkvunargjöld og gluggatjöld í stofu sett upp og íbúðin öll máluð. Þá voru fataskápar í hjónaherbergi endurnýjaðir og ásamt lausum skápum i forstofu og barnaherbergi.
Sérlega falleg eign í góðu ásigkomulagi á eftirsóttum stað í Hafnarfirði. Stutt í alla þjónustu
Allar nánari upplýsingar veitiir Friðrik Þ. Stefánsson lögm. og löggiltur fasteignasali íí s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
220 | 91.4 | 64,9 | ||
220 | 75.1 | 63,9 | ||
220 | 91.1 | 63,7 | ||
220 | 70.1 | 62,9 | ||
220 | 90.6 | 62,9 |